Valsblaðið - 24.12.1966, Side 50

Valsblaðið - 24.12.1966, Side 50
48 VALUR netið hjá Reykjavíkur, og hér um bil út í port... .... Tveim mínútum síðar skildi enginn í því hvernig „Bennó“ (Ben. G. Wáge) fór að því að koma knettinum í mark hjá AB, en öllum þótti gott og urðu ánægðir. Vísir, miðvikudaginn 13. ágúst 1919: Knattspyrnan. Úrvalsliðið vinnur með 4:1. Harðsperrur á Vellinum. .... Margt fer öðruvísi en ætl- að er, og svo var um leikinn í gær- kveldi. — Knattspyrnumenn okkar léku í gærkveldi svo vel að þeir hafa ekki gert í annað skipti betur. .. ..Tryggvi (Magnússon) gekk meiri berserksgang en hægt er að búast við af jafnsmávöxnum manni, og varð hann átrúnaðar- goð áhorfenda. Pétur Sigurðsson (Háskólaritari fyrv.) skipti um ham áður en hann fór á sviðið á sunnudaginn var og í sama hamn- um var hann í gærkveldi, og munu allir óska að hann fari aldrei úr honum framar. .... Og Stefán Ólafsson (mark- vörður) gerði mörg tákn og stór- merki, og mun óefað hafa aflað sér vinfengis áhorfenda.....Ótalið er ennþá það sem mestu réði um úrslit leiksins og heita það harða- sperrur. Svo var mál með vexti að Heimboðsnefndin sá eina ráðið til þess að AB gæti fengið slæma út- reið var það að fara með Danina í „útreiðatúr." Þetta hreif í fyrrakvöld, þegar þeir komu úr Firðinum, voru þeir allir liðamótalausir um hnén, og það sem snert hafði hnakkinn, eins og glóandi eldhaf. Liðamótin voru ekki fundin og eldurinn ekki slokknaður í gærkveldi, og undir þeim kringumstæðum er ekki gott að sparka knetti.... í þessum gömlu blaðaúrklippum er margt skemmtilegt að lesa sem því miður er ekki rúm fyrir í Vals- blaðinu að þessu sinni. Þó er gaman að geta fyrsta úr- valsliðsins sem valið var til að mæta erlendu liði og með nokkrum rétti má kalla fyrsta „landslið Is- lands“ þótt ekki hafi verið um landsleik að ræða heldur sterkasta liðið sem völ var á þá. Lið þetta og leikstaða er birt á forsíðu Vísis 12. ágúst 1919 og var það þannig skipað: Stefán Ól- afsson Val. Pétur Sigurðsson Fram, Gísli Pálsson Fram, Magn- ús Guðbrandsson Val. Tryggvi Magnússon Fram, Óskar Norð- mann Víking, Ósvald Knudsen Fram, Róbert Hansen KR, F. Thorsteinsson Fram, Páll Andrés- son Víking, Kristján Gestsson KR. Dómari í leiknum var Ben. G. Wáge. Vísir 6. og 9. júní 1923. 1 gærkvöldi kepptu Fram og Val- ur og urðu úrslitin þau að Fram vann með 3:2. — Það hefur vakið sérstaka athygli að Valur tekur nú þátt í fyrsta flokks kappmóti eftir margra ára hvíld. Er það gleðilegt að hinir ungu menn sem félagið hefur sent út á völlinn reynast að vera leiknir og vaskir vel. Hafa þeir reynzt Fram og KR þungir í skauti. F. H. „Valur“ 25. tbl. MeS þessu tölubláði verÖur örlítiö breytt til um heiti félagsbláSs Vals, og það látiS heita „VALUR“. Sigfús Halldórsson hreyfSi þessu fyrst og áSrir komu á eftir meS sömu hugmynd. Vonandi fellur Valsmönn- um þessi breyting vel í géS. Þetta blaS verSur afmœlis- og jóla- blað, og ber ekki síður keim af af- mœlisblaði, þar sem svolítið er reynt að grafa upp frá gömlum tímum at- vik og frásagnir. Auk þess hefur ver- ið meira rabbaS viS eldri menn, en yngra fólkinu gefiS meira frí áS þessu sinni. Ritstjórn blaðsins óskar öllum Valsrnönnum og lesendum bláSsins GLEÐILEGRA JÓLA! Skipun aðalstjórnar Vals 1961-1966. 1961: Sveinn Zoega formaður. Gunnar Vagnsson varaformaður. Einar Bjömsson ritari. Páll Guðnason gjaldkeri. Valgeir Ársælsson bréfritari. 1962: Sveinn Zoega formaður. Gunnar Vagnsson varaformaðm-. Páll Guðnason gjaldkeri. Einar Bjömsson ritari. Matthías Hjartarson bréfritari. 1963: Páll Guðnason formaður. Gunnar Vagnsson varaformaður. Einar Bjömsson ritari. Orrnar Skeggjason gjaldkeri. Geir Guðmundsson bréfritari. 1964: Páll Guðnason formaður. Gunnar Vagnsson varaformaður. Einar Björnsson ritari. Þórður Þorkelsson gjaldkeri. Ormar Skeggjason bréfritari. 1965: Páll Guðnason formaður. Gunnar Vagnsson varaformaður. Einar Björnsson ritari. Þórður Þorkelsson gjaldkeri. Friðjón Friðjónsson bréfritari. 1966: Páll Guðnason formaður. Gunnar Vagnsson varaformaður. Einar Bjömsson ritari. Þórðixr Þorkelsson gjaldkeri. Friðjón Friðjónsson bréfritari. Bjöm Carlsson formaður ICnatt- spymudeildar. Þórarinn Eyþórsson formaður Handknattleiksdeildar.

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.