Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 53

Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 53
VALUR 51 enginn hvalreki fyrir neitt félag. Hinsvegar hugði ég gott til að vera í íþróttafélagi, og dvöl mín í Val varð mér sannarlega engin von- brigði. Rétt um þessar mundir fluttist ég alfarinn til Reykjavíkur aftur og áhuginn fyrir Val tók hug minn allan. Þar kynntist ég miklum samhug og félagsanda, sem var hreint til fyrirmyndar. Axel Gunn- arsson var lífið og sálin í félags- málunum. Verzlunin var fundar- staður Valsmanna, þar var komið saman og rabbað, og heimili Axels var einnig oft undarlegt, t.d. þeg- ar verið var að undirbúa hluta- veltur og önnur stórmál. Þarna kynntist ég mörgum góð- um félaga, og má þar nefna auk Axels þá bræður Jón, Ámunda og Ólaf Sigurðssyni, Halldór Árna- son, Snorra Jónsson og marga aðra. Eg æfði alltaf með, og hafði gaman af, þótt ég vissi það að ég gæti aldrei orðið knattspyrnumað- ur. Eftir æfingarnar hljóp ég allt- af nokkra hringi á vellinum. Eitt af þeim störfum, sem ég annaðist um alllangt skeið, að sjá um knett- ina, ég bjó í Hellusundi, stutt frá Vellinum, og þótti tilvalið að ég annaðist þetta. Fór ég með knetti í strigapoka á bakinu suður á völl þegar æfingar voru. Minnistætt er mér líka sumarið 1929 þegar ég féllst á það að taka að méraðþjálfa þriðjaflokksdrengina. Þarna voru samankomnir prýðisdrengir, sem héldu vel saman, og sumir þeirra áttu eftir að gera garðinn frægan með góðum leik. Æfingarnar fóru fram á gamla íþróttavellinum, þar sem bæjarhúsin eru nú við Hring- braut. Eg og við vorum heppnir, því flokkurinn vann þetta sumar fyrsta þriðjaflokks mótið í sögu félagsins. Eg gleymi ekki úrslita- leiknum, eiginlega varð ég mér til skammar, því ég þaut fram og aftur með línunni eftir því sem knötturinn gekk og var fólkið far- ið að horfa meira á mig en leik- mennina! Ég lét mér þetta að kenn- ingu verða, og hef tamið mér að vera stilltari við leiki síðan. Við héldum mjög vel saman og þó ég væri mun eldri en drengirn- ir, vorum við oft saman í bíó og víðar. Og þegar ég renni hugan- Hver er VAL5MAÐURINN? Þeir eru of margir í hinum ýmsu íþróttafélögum, sem yfirgefa starf- semi þeirra að fullu og öllu, er þeir hætta iðkun íþrótta. Þannig missa félögin of oft af góðum og gegnum starfskröftum með marg- þætta reynslu að baki, bæði íþrótta- legri og félagslegri. I þessu tilviki getur þó Valur allvel við unað sínum hlut, því margt dugandi kvenna og manna á sviði íþróttastarfs félagsins, hafa haldið fullri tryggð við það, þó látið hafi af íþróttaiðkunum með keppni fyrir augum, en látið félag- ið njóta starfskrafta sinna og margþættrar reynslu á hinu fé- lagslega sviði. Einn í hópi slíkra félagsmanna, er Þórður Þorkelsson endurskoð- andi. Þórður er Reykvíkingur, fæddur hér í borg hinn 20. febrúar 1925. Kornungur að aldri fékk hann áhuga fyrir íþróttastarfinu. um til þessara gömlu góðu ára, finn ég að ég hef átt margar á- ánægjustundir í Val. Eins og ég gat um áðan hljóp ég alltaf eftir æfingarnar, og eitt sinn er Jens Guðbjörnsson þar staddur, og spyr mig hvort ég vilji ekki vera með í innanfélagsmóti hjá Ármanni, og varð það úr, og þar með má segja að teningnum hafi fyrir alvöru verið kastað, þar hef ég hlaupið síðan og starfað, en alltaf sami Valsmaðurinn. Að lokum vil ég óska Val allra heilla á komandi tímum, og vona að þeir standi sig betur á komandi árum, en á þeim síðustu, þó vel hafi oft gengið. Allir Valsmenn árna Jóhanni heilla í tilefni af þessum merku tímamótum í ævi hans og þakka störf hans á löngu liðnum árum, og fram til þessa dags. F. H. Þórður Þorkelsson. Gerðist hann félagi í Val aðeins 8 ára gamall, eða árið 1933. Hóf Þórður knattspyrnuiðkanir hjá Murdo hinum brezka, sem um ái*a- bil var þjálfari Vals. Voru æfing- ar þá á Haukalandsvelli. Lék Þórð- ur svo í öllum yngri flokkunum jafnskjótt og hann hafði aldur til, og auk þess, er tímar liðu, í 1. flokki og var þar fyrirliði. Stund- aði Þórður æfingar af kappi og samvizkusemi allt þar til árið 1947 að hann „fór á síld“, kom þá aftur- kippur úr því í æfingasóknina, þar sem hann eftir síldarvertíðina stundaði þá vinnu, sem gerði hon- um ekki mögulegt að sækja æfing- ar með sama hætti og áður. Lagði þá Þórður knattspyrnuskóna á hilluna, og leit svo út sem frekari íþróttasókn hans væri lokið. En það átti eftir að sýna sig að hér var aðeins um upphaf starfsins að ræða hjá Þórði fyrir Val. Það var Geir Guðmundsson sem átti sinn drjúga þátt í því að tryggja starfs- sögu Þórðar fyrir Val og það allt fram á þenna dag. Hann fékk Þórð til að snúa sér að handbolt- anum, sem þá átti og á, miklu og vaxandi fylgi að fagna innan Vals. Geir rakst á Þórð á götu og bað hann að hlaupa í skarðið fyrir pilt, sem vantaði í II. fl. lið, sem keppa átti í Iþróttahúsi Jóns Þor- steinssonar. Þórður kom og hand- bolta-bakterían greip hann og yfir- gaf hann ekki eftir það.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.