Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 58

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 58
56 VALUR Hann kom, sá 02 srnraði Kabbuit) riéf Björn Carlnnon, pídnálina í lenaíispyrnunni í Val hann né Þjóðverjar gátu komið nokkurri vörn við og skoraði Hurst þar þriðja mark sitt í leiknum, og áhorfendurnir á ódýru stæðunum tóku gleði sína aftur, og nú sungu þeir svo um munaði. England varð heimsmeistari í knattspyrnu, og brezkir knatt- spyrnuáhorfendur hafa glaðst af minna tilefni! MEST Á ÓVART. Það sem kom mest á óvart í þess- ari lokakeppni, var frammistaða Norður-Kóreu, fyrst og fremst sig- ur þeirra yfir Italíu, og leikur þeirra við Portúgal. Þegar sá leikur fór fram var ég staddur á Wembley, og komu þá tilkynningar þar á töflu um stöð- una í honum og öðrum leikjum, sem fóru fram samtímis. Ég varð allt í einu var við svo- lítinn klið og hlátur hér og þar um völinn, og veitti því ekki sérstaka athygli. Eftir nokkra stund endur- tekur þetta sig. Augu manna beindust að töflunni, og nú fór ég að verða forvitinn, og komst þá að raun um að verið var að tilkynna leikstöðuna í leik Portúgals og Norður-Kóreu. Þegar hér var kom- ið, stóðu leikar 2:0 fyrir Norður- Kóreu, og var nú hlegið og klapp- að sínu meir en í hið fyrra skipti. Enn líða 10 mín. og er nú hlegið og klappað sínu mest af því nú stóðu leikar 3:0. Vakti þetta ákaf- an fögnuð og hrifningu, en svo snéru Portúgalar þessu við, eða réttara sagt Eusebio tók til sinna ráða og skoraði 4 mörk með frá- bærum leik, en leiknum lauk sem kunnugt er 5:3 fyrir Portúgal. Aðalveila Norður-Kóreu var sú, að þá skorti nokkuð á að ráða yfir góðu leikskipulagi, en leikni, hraða og góða þjálfun höfðu þeir. Þessi ferð mín var ævintýri lík- ust. Þarna sá ég beztu knattspyrnu- menn heimsins, beztu lið heimsins, og ef til vill beztu áhorfendur að knattspyrnu, — áhorfendur, sem kunna skil á hvað vel er gert og hvað illa, og láta það í ljós hvernig þeim líkar. Einmitt þetta verður mér ekki síður eftirminnilegt en sjálfir leikirnir og einstaklingar þeirra, sagði Sigurður að lokum. F.H. Eins og getið er á öðrum stað í blaðinu lét Björn Carlsson af störf- um sem formaður knattspyrnu- deildarinnar nú á síðasta aðalfundi deildarinnar, eftir tveggja ára starf. Þetta voru mörgum Vals- mönnum ill tíðindi, svo vel hefur Björn starfað og haldið á spilun- um þetta tímabil, að vanskipað yrði sæti hans. Hann sjálfur og við hin verðum þó að trúa því að mað- Björn Carlsson, „herforinginn“ sigursæli. ur komi manns í stað, og engu er að vantreysta þar sem við tekur Elías Hergeirsson. Þótt Björn hafi komið til félags- ins fátækur af félagslegri reynslu í knattspyrnufélagi, hefur hann samt unnið upp það sem kann að hafa á skort um félagsmálareynslu, með slíkum eldlegum áhuga að þess munu fá dæmi. Ekkert var honum óviðkomandi er snerti knattspyrnumenn Vals. Hann vissi allt sem vitað varð um Knatt- spyrnudeildina og það líf sem þar iðaði, einfaldlega af því að hann fylgdist með öllu sem var að ger- ast, hann var alltaf til staðar þeg- ar eitthvað var um að vera. Með þessu vann hann sér traust allra í deildinni ekki aðeins þeirra sem voru með honum í stjórninni, en einnig leikmanna eldri sem yngri. Það verður heldur ekki annað sagt en að þessi tvö síðustu ár hafi ver- ið mikil sigurganga hvað knatt- spyrnuna snertir. Lengi mun þess minnst þegar hann kallaði menn sína saman í fyrrahaust og eggj- aði þá lögeggjan fyrir bikarkeppn- ina, kannaði síðan lið sitt, og menn vita árangurinn. Því var haldið fram hér í blaðinu í fyrra að með þrumuræðu sinni hafi Björn raun- verulega unnið bikarkeppnina! Það er því hægt að segja að Björn hafi „komið, séð og sigrað" þetta tímabil sem hann hafði forustu í knattspyrnudeildinni. I tilefni af því að Björn lé af störfum í deildinni — í bili — þótti Valsblaðinu rétt að rabba svolítið við hann um þessi 2 ár. Hvernig vildi það til að þú tókst að þér formennskuna? Það voru víst einhver vandræði með formann, og Páll Guðnason og Úlfar Þórðarson nefndu þetta við mig, en ég vildi ekki. Þá er það að Úlfar biður mig að tala við sig á lækningastofunni, sem ég og geri. Talaði Úlfar þá svo fyrir þessari stöðu að það var eins og ég mætti þakka fyrir að fá svona luxus- stöðu. Þetta væri dásamlegt starf, bara að vera formaður og ekkert annað. Þetta liggur allt hreint og klárt fyrir, það vantar bara þjálf- ara í alla flokka, en þú hefur frjálsar hendur með það, að sjálf- sögðu. Það þurfti svo ekki að tala meira um þetta, það væri afráðið. Ég var orðinn eins og í leiðslu, þarna inni hjá honum. Viðskipta- vinirnir biðu eftir afgreiðslu, á meðan Úlfar var í óða önn að hamra til nýjan formanninn, og hafandi samúð með fólkinu sem beið, og svo hinu að vera ekki að slá af mér þessu kostaboði, sem sennilega biðist ekki á næstunni,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.