Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 67

Valsblaðið - 24.12.1966, Blaðsíða 67
VALUR 65 Draumur hvers fyrirliða: A'ð vinna leik, að vinna mót. Hér rættist draumur Árna Njálssonar, fyrirliða Vals, form. KSÍ hefur afhent honum íslandsbilcarinn 1966. Arni Njálsson lék 200 Á þessu hausti, eða nánar til- tekið í leiknum við Akureyri í Bik- arkeppninni, lék Árni Njálsson 200. leik sinn í meistaraflokki. Ekki þarf að kynna Árna fyrir Valsmönnum, hann er öllum sem hann sjá í leik, eftirminnilegur fyrir kraft sinn, hraða og hörku- vilja, eiginleikar sem sá verður að hafa sem ætlar að ná árangri í knattspyrnu. 1 tilefni af þessu atviki hittum við Árna að máli og lögðum fyrir hann nokkrar spurningar: Skemmtilegasti leikur sem þú hefur leikið? Ég held það sé leikur tilrauna- landsliðs við Dynamó Kiev 1957. Við unnum þann leik 4:3. Lið okk- ar sýndi mjög góða knattspyrnu, nú og svo var það leikurinn við Dani þegar við gerðum jafntefli við þá 1:1, það var 1959. Átakanlegustu og leiðinlegustu leikir? Æ, þeir voru svartir leikirnir við KR um 1960 þegar við vorum að tapa með 6:0 og 7:1, það var óskapleg hörmung að vera með í því. leik sinn í haust Eftirminnilegustu leikir ? Þeir eru í rauninni margir, en ég held að einna eftirminnilegasti leikurinn sem ég hefi verið með í sé þegar við lékum gegn Nieder- Saksen frá Þýzkalandi, en Albert Guðmundsson var þar með, og mörkin sem hann skoraði í þeim leik verða mér ógleymanleg. Ég man líka eftir öðrum leik þar sem Albert var með og var það móti Fram, það er aðeins ein mínúta til leikhlés, og það er dæmd víta- spyrna á Val, en sá sem tekur spyrnuna skaut í stólpann og hrökk knötturinn til Alberts, sem var kominn aftur í vörnina. Flestir hefðu, svona til að „bjarga" spark- að allt hvað af tók langt í burt, og það gerði Albert einnig, en hann gerði meira. Hann vissi að flestir Framaranna voru komnir inná vallarhelming Vals, og með leiftur- hraða athugar hann leikstöðuna, og öskrar til Björgvins Daníels- sonar að fara af stað, og það skipt- ir engum togum, hann spyrnir knettinum á eftir honum, og það skeikaði ekki, knötturinn kom nið- ur þar sem Björgvin var, kominn innfyrir alla, þetta var varla minna en 50 m spyrna, og hann skorar! Hvenær lékst þú fyrst með meistaraf lokki ? Það var 1953 og þá lék ég sem útherji, og var heppinn, skoraði mark, var þá aðeins 16 ára gamall. Hugrenningar um að hætta eða bæta 100 við? Hef engar hugrenningar um það, hætti þegar minn tími er kominn, og engar áætlanir, hef gaman af þessu enn. F.H. VALSMENIM! Þegar þið þurfið að minnast látinna vina ykkar, þá munið Minningarsjóð Kristjáns Helg’asonar. Minningarspjöld- in fást í Bókabúð Braga í Hafnarstræti. VEIZTU ? að í upphafi hét Fram Fótboltafélagið Kári, það var stofnað 1. maí 1908, en ári síðar var því breytt í Knatt- spyrnufélagið Fram (Framblaðið).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.