Valsblaðið - 24.12.1966, Side 68
66
VALUR
Benedikt G. Waage.
Heiðursforseti íþróttasambands
íslands, Benedikt G. Waage, andað-
ist þ. 8. nóv. sl. Með Benedikt er
genginn einn þeirra brautryðjenda
sem af ást og áhuga fórnuðu í-
þróttunum ótrúlega stóran hluta
af ævi sinni, og enginn mun hafa
komizt lengra í því en einmitt
Benedikt. Hann var 78. aldursári
þegar hann lézt, og var virkur í
samtökum íþróttamanna í meira
en 60 ár. Á yngri árum var Bene-
dikt góður íþróttamaður, og kom
víða við um iðkun íþrótta. Fljót-
lega voru honum falin forustu-
störf í íþróttasamtökum, og um
skeið var hann formaður ÍR (5
ár) og KR (3 ár). Mest kom hann
þó við sögu heildarsamtakanna:
Iþróttasambands Islands, en í
stjórn þess var hann kjörinn 1915,
og var fyrstu árin sem gjaldkeri
og varaforseti, en 1926 var hann
kjörinn forseti ISI og var það ó-
slitið til ársins 1962. Þegar hann
lét af því starfi var hann kjörinn
fyrsti heiðursforseti ÍSÍ.
Það lætur að líkum að hann hafi
á þessu langa tímabili komið víða
við, og lagt mörgum málum lið,
sem þegar hafa séð dagsins ljós.
Mörg þeirra þó fyrir harða bar-
áttu og langa, þó þau nú þyki sjálf-
sögð. En þannig er það með for-
ustumanninn, hann verður að
berjast lengi fyrir því „sjálf-
FALLNIR ÍÞRÓTTA-
Erlingur Pálsson.
Erlingur Pálsson, fyrrverandi
yfirlögregluþjónn, andaðist hér í
Reykjavík 22. okt. s.l. Hann hefur
verið um langt skeið einn af for-
ustumönnum íþróttahreyfingar-
innar snjall sundmaður á sínum
tíma. Sund varð honum Hka hug-
leiknust allra íþrótta, enda varð
hann fyrir áhrifum frá föður sín-
um Páli Erlingssyni, sem kalla má
föður nútíma sundíþróttar á ís-
landi.
Hann stundaði sundnám í Lon-
don 1914 og tók þar sundkennara-
próf og prófdómarapróf. Hann var
um langt skeið aðstoðarmaður föð-
ur síns, eða á árunum 1909 til
1918.
Árið 1915 fékk hann styrk frá
ríkinu til að kenna skólanemendum
í Reykjavík, sjómönnum og sund-
kennurum sund- og lífgunartil-
raunir.
Erlingur var einn þeirra, sem
fóru í sjó á vetrum og syntu þar
og hann tók oft þátt í Nýárssund-
inu. I kappsundum var hann á ár-
unum 1911 til 1926 mjög sigursæll,
og hann vann sér það til ágætis að
synda úr Drangey og til lands, og
ef svo má segja sanna sögu Grettis.
Erlingur kom mjög við sögu fé-
lagsmála í íþróttum, og hafði þar
forustu víða. Hann var um skeið
formaður Sundfélags Reykjavíkur,
formaður Sundráðs Reykjavíkur í
fjölda ára, forseti Sundsambands-
ins frá stofnun þess. Varaforseti
Iþróttasambands Islands var hann
í 18 ár.
Hann tók þátt í mörgum nefnd-
arstörfum fyrir Iþróttahreyfing-
una, var tíðum fararstjóri flokka,
sem ferðuðust til annarra landa,
þ.á.m. aðalfararstjóri íslending-
inganna á Olympíuleikunum í
Lundúnum 1948.
Erlingur varð lögreglumaður
rösklega tvítugur að aldri, stund-
aði nám við lögregluskóla í Kaup-
mannahöfn, og sótti oft námskeið
í ýmsum greinum lögreglumála er-
lendis.
Erlingur Pálsson var fæddur í
Áshrauni á Skeiðum 3. nóv. 1895
og var því nær 71 árs er hann lézt.
Hér er Erlingi þakkað samstarf
um langan tíma í stjórn íþrótta-
sambands Islands og víðar.
F. H.
sagða.“ Hér er ekki rúm til að
drepa á öll þau málefni, sem hann
beitti sér fyrir. Þáttur Benedikts
í sögu íþróttanna á Islandi er
merkur og ber áhugamanninum
fagurt vitni.
Um 20 ára bil hefur Benedikt
átt sæti í alþjóða-Olympíunefnd-
inni, sem hefur yfirumsjón með
Olympíuleikunum. — Á árunum
1951—’61 var hann íþróttaráðu-
nautur Reykjavíkurborgar. Bene-
dikt vann mikið að útgáfu íþrótta-
bóka, þó til þess væri sjaldnast
veittur sá styrkur, sem nauðsyn-
legur var. Má þar nefna heilsu-
fræði íþróttamanna, fyrstu knatt-
spyrnulög ÍSl, sundbókar ISÍ o.fl.
bóka og reglna.
Hann ritstýrði íþróttablaðinu
Þrótti um 5 ára skeið, og fór orð
af því blaði, og margar greinar
skrifaði hann í blöð og tímarit.
Allir Valsmenn þakka þessum
látna forustumanni fórnfúst starf
fyrir æsku Islands, og votta hon-
um dýpstu virðingu.
F. H.