Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 71

Valsblaðið - 24.12.1966, Qupperneq 71
VALUR 69 DANIEL ÞORKELSSON: — „Skrýtið, sr. Friðrik þótti það ekkert miður hó Vaiur tapaði við og við((. Daníel Þorkelsson, núverandi málarameistari hér í borg, var mið- herji í liði því, sem vann fyrsta mótið fyrir Val, en það var 2. fl. 1919, og báðum við hann að rifja upp, ef hann myndi eitthvað frá því móti eða þeim dögum. Daníel varð vel við þessari beiðni, og fer það hér á eftir: Ég er nú því miður búinn að gleyma miklu frá þessum árum, því ég hef ekkert skrifað hjá mér af því, sem þá gerðist í knattspyrn- unni. Þetta var meira í þá daga þátt- ur í daglegum leikjum okkar strák- anna en að um skipulagða íþrótt væri að ræða. Eigi að síður var alltaf gaman að taka þátt í þess- um leik að vera með. Það merkilega var að ég átti heima á æskuárum mínum við Bræðraborgarstíginn inni í miðju áhrifa-svæði KR-inganna, og það var aldrei um annað að ræða en að vera Valsmaður, þrátt fyrir það. an, og varð af mikil þröng og læti og ýtti hver sem betur gat, KR- ingar frá marki sínu, en Valsmenn inn í markið og það þótt ekki væri vitað hvar knötturinn væri í þess- ari iðandi kös. Þegar svo úr þessu greiddist kom í ljós, að knöttur- inn var kominn inn fyrir mark- línuna og dæmdi þessi enski sjó- liðsforingi mark. Það var varla tími til að byrja aftur leikinn, svo lítið var eftir ,og vann Valur þvi í þessum þriðja úrslitaleik með 3 :2. Hófust nú upp mikil gleðióp við austanverðan völlin og heyrðist ekki mannsins mál í þessum látum. Að vestanverðu kváðu við reiði- og óánægjuóp yfir þessum úrslit- um, en við sjóliðsforingjann úr sjóher brezka heimsveldisins þýddi Við vorum mikið saman, Viggo heitinn Þorsteinsson, og stofnuð- um við sitt hvort félagið þarna vesturfrá, og hét mitt félag Bald- ur, en hans Bragi. Var aðaltil- gangurinn með þessari félagsstofn- un að fá meiri tilbreytni í lífið og efna til keppni milli þeirra, það var meira varið í það en að sparka, eða skipta liði á einhverju svæð- inu. Það var mikið að gera þegar leikirnir áttu að fara fram, sem venjulega var á sunnudögum. Um morguninn var haldinn fundur til þess að raða niður í lið- ið og safna því saman, og ákveða leikstað, sem oftast var á leikvelli við Túngötuna. Ég man alltaf eftir því þegar mitt lið kom til leiks með hvítan borða yfir þvert brjóstið með á- letruðu nafni félagsins, Baldur, og þótti okkur mikið til borðanna koma, og þeir vöktu athygli þeirra sem á horfðu. Ég fór aldrei í sveit á sumrum, ekkert að sakast, hann hafði dæmt sinn dóm. Eftir leikinn urðu nokkur blaða- skrif um leikinn, þar sem því var haldið fram, að tíminn hefði verið búinn, þegar síðasta markið kom, en ekkert varð meira úr því. Við fórum svo norður með piltana, sem þarna léku og liðtækir voru í fyrsta flokkinn. Sú för var ævin- týri líkust, en um hana hefur Öl- afur Sigurðsson skrifað í eitt af afmælisblöðum Vals, ég held 25 ára ritið. En þessi leikur annars flokks milli KR og Vals verður mér alltaf einn minnisstæðasti leikur Vals, sem ég hef séð. F. H. Daníel Þorkelsson. Einn þeirra, sem braut isinn og gaf Val trú á tilveru sina aftur. og því var þetta aðalskemmtunin, og í þetta hlaupið milli þess að við vorum að breiða fisk á stakkstæð- um, sem víða voru í þá daga, og til þess viðraði. Ég var félagi í U.D. í KFUM og tók þátt í því sem þar var að ger- ast, og æfði því með Val á svæði þeirra, þar sem nú er Melavöllur. Æfingarnar í þá daga voru held- ur skipulagslausar, og það sem mest vantaði var stjórnandi, sem hélt uppi lögum og reglum og ein- hvern, sem sagði til hvernig leika ætti og hvernig ætti að fara með knöttinn. Þetta þekktist eiginlega ekki. Æfingarnar einkenndust af því að allir vildu gera mark, og allir vildu vera þar sem knöttur- inn var, til þess að geta náð í hann og komið við hann. Menn skildu ekki þetta ,,manntafl/‘ Dugnaður var nógur og áhugi, en árangur varð ekki að sama skapi vegna þess að fræðsluna vantaði. Við Valsstrákarnir litum alltaf upp til Framara, sem okkur fannst leika langbezt af félögunum hér. Þetta ár sem við unnum mótið mun Magnús Guðbrandsson hafa helst verið með okkur og stjórnað æfingum. Stefán Ólafsson var okk- ur líka mjög hjálplegur, en hann
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Valsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.