Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Blaðsíða 94
92
mundssonar landnema í Garði í Hnausabygð, Mar-
teinssonar. — Síðari kona Kristjóns var Þórunn
Björg, dóttir Eiríks Sigurðssonar og Ingunnar
Bjarnadóttur, er bjuggu í Heiðarseli í Hróarstungu,
en fluttu til Vesturheims 1876, sem getið er í sögu
Mikleyjar. Þar er barna þeiira Kristjóns og Þór-
unnar getið. Þau hjón eru nú bæði dáin fyrir
nokkrum árum. — Telja má Kristjón Finnsson
framarlega í fylkingu íslenzkra landnema vestan-
hafs.
Landnemi S. E. 1.
Landnemar SandhæðabygSar. (Sylvan)
Jónas J. Jónasson. — Foreldrar hans voru Jó-
hannes Jónasson og Halla Jónsdóttir. Þau tóku
iand í Fljótsbygð er þau nefndu Jaðar. Þar er
þeirra getið í landnematali Fljótsbygöar (viðauka).
Bróðir Jóhannesar var Einars læknis á Gimli. Jó-
hannes lézt 5. febrúar 1904. Eftir lát hans flutti
Halla á þetta land, sem Jcnas sonur hennar þá tók
og nefndu Jaðar, eftir hinu fyrra landnámsbýli sínu.
Hér bjó hún með börnum sínum, þar til hún lézt
16. des. 1929. Hún þótti verið hafa hin mikilhæf-
asta kona. Þau Jóhannes eignuðust 13. börn, var
þá margt af börnum þeirra í ómegð er hann féll
frá. Þótti því tilfinnanlega stórt skarð höggvið í
landnemaflokkinn við fráfall hans, er þótti verið
hafa hinn mesti manndóms og mannkostamaður.
Tvö börn þeirra lijóna dóu ung. Hin náðu fullorð-
ins aldri, sem hér eru talin: 1. Ólafur; 2. Guðný,
kona Tryggva Halldórssonar: 3. Þuríður, kona
Björns Ólafssonar; 4. Kristín, sem býr hér með
bræðrum sínum; 5. Jónas, liér landnemi; 6. Ásgerð-
ur, kona Ármanns Magnússonar; 7. Hermann; 8.
Einar: 9. Hjörtur; 10 Guðrún; 11. Ingigerður; þær
tvær systur síðastnefndu eru vestur í Vancouver.
En á Jaðri eiga þeir bræður allir heimili og búa
þar sem einn maður með Kristínu systur sinni.
Börn Guðnýjar systur þein-a eru hér einnig, er hér
hafa alist upp frá því móðir þeirra dó 1914, en hún
er ein dáin þeirra systkina sem hér voru nafn-