Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Blaðsíða 119
117
Árið 1914, er var veltiár, færist stofnunin það i auk-
ana, að hún býr til nálega helmingi meiri vöru en hún
hafði nokkru sinni áður gert. Það ár er framleiðslan 56,000
pund.
Éinmitt það ár skellur á heimsstyrjöldin mikla. Lam-
aði hún fyrst í stað framkvæmdalif á mörgum sviðum, þar
til stríðsþjóðirnar fóru að verða hræddar við skort á
nauðsynjavörum, og fóru að ýta undir menn að framleiða
meira. Mátti þá smjörgerðarfélagið reyna, að “mörg er
búmanns raunin”. Árið 1915 minkar framleiðslan meira
en um helming. Er það ár aðeins 22,000 pd. Lá þá við sjálft
að menn mistu móðinn og kom þá jafnvel til orða að stofn-
unin hætti. Mun og samkepni öflugra félaga í Winnipeg
hafa átt hér nokkurn hlut að máii. Stafaði þaðan eigi
svo lítil hætta. Brátt fóru þó menn að sjá, að svo búið
mátti ekki standa. Félagið varð að halda áfram. Tiiö
hærra verð er var í hoði fyrir rjóma, sendan til Winnipeg,
mundi fljótlega lækka, ef þetta féiag hætti að starfa.
Menn fóru að tala kjark hverir í aðra ,og jafnframt að
bindast fastari samtökum með að hlynna að stofnuninni.
Með auknum áhuga og endurnýjuðum vonum hundu menn
það fastmælum, að áfram skyldi haldið, hvað sem í kynni
að slcerast.
Næsta ár, árið 1916, eykst framleiðsla félagsins ná-
lega um helming, er þá 43,000 pund. 1917 fer hún upp í
61,000. 1918 kemst hún upp í 69,000. Næsta ár, 1919 ,er hún
komin upp í 91,000 pund. Árið 1920 hækkar hún enn, og fer
þá upp í 107,000. Fer hún þá stöðugt hækkandi næstu
ár. Er 1921 orðin 125,000. 1922 fer hún upp í 167,000. Er
næsta ár mjög svipuð ,en fer árið 1924 upp i 179,000 pd.
Tvö næstu árin eykst umsetningin stórkostlega. Kemst
upp í 211,000 árið 1925, og 1926 verður hún 218,000. Er
það hámark framleiðslunnar á þeim árum.
Árið 1917 réðist félagið í það að bæta við sig áhöld-
um til að móta smjör í punds-stykkjum. Greiddi það stór-
lega fyrir geymslu og sölu vörunnar, um leið og það gerði
félaginu mögulegt að starfa alt árið um kring. Varð þetta
tiltæki drjúgt happaspor og markar nokkurskonar tíma-
mót í þroskasögu félagsms.
Á árunum 1927 til 1930 minkar umsetningin nokkuð.
Samt sem áður er hún mjög vel viðunanleg. Er þetta hátt
á annað hundrað þúsunda á ári. En síðastliðíð ár tekur
hún undir sig stökk mikið. Kemst þá upp í 243,000 pund.
Er það hið langmesta vöruframleiðsluár félagsins.
Alls hefir smjörgerðarfélagið, á síðastliðnum 25 ár-
um, búið til um 2,620,000 pund og hefir selt þá vöru fyrir
$1,031,000. Er það býsna álitleg upphæð.
Að því er séð verður, hafa þessir menn átti sæti í
stjórnarnefnd félagsins um lengri eða skemri tíma:
Tómas Björnsson, G. Oddleifsson, Hallgr. Friðriksson,
Páll Halldórsson, S. M. Sigurðsson, Th. M. Sigurðsson, J.