Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 5

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 5
Páskatímabilið. Kirkjuþingið í Niecea, er haldið var árið 325 eftir Krists fæðing, ákvað og leiddi í lög kirkjunnar, að páska hátíðin skyldi ætíð haldin vera hinn fyrsta sunnudag eftir fyrsta tungl, er springi út næst eftir 20. marzmán. Sam- kvæmt ákvæði þess getur páskahátíðin átt sér stað á 35 daga tímabili, nefnilega á tímabilinu frá 22. marz til 25. apríl, að þeim dö^um báðum meðtöldum. Þetta tímabil er nefnt páskatímabilið. Af þessu leiðir, að ef tungl væri fult 21. marz, og 22. marz bæri upp á sunnudag, þá vrði sá dagur (22.) páskadagur. Fyr á ári geta páskar aldrei orðið. Þetta átti sér stað árið 1818. En sé tungl fult 18. apríl og 18. apríl bæri upp á sunnudag, yrði næsti sunnu- dagur páskadagur, nefnil. 25. apríl. Það kom fyrir síðast árið 1886. Sóltími. Sólarhringur er sú tímalengd, er líður á milli þess, er sólin gengur yfir ákveðna hádegislínu, og er það hin eðlilegasta skifting tímans. En sökum hinnar mismun- andi hreyfingar jarðarinnar umhverfis sólina og sökum bugsins á sólargangslínunni (Ecliptic), er aldrei nákvæm- lega jafnlangur tími milli þess, er sól gengur yfir ákveðna hnu. Af því leiðir, að það er lítt mögulegt að setja stunda- klukku eftir sól. Til að ráða bót á þessum mismun, setja menn svo að önnur sól sé til, og að hún gangi með jöfnum hraða þvert vfir miðjarðarlínuna. Er sú ímyndaða sól þá stundum á undan og stundum á eftir hinni einu virki- legu sól. Er sá mismunur mestur 16 mínútur. Réttur sóltími er miðaður við hina verkilegu sól, en hinn svo- kallaði “meðal sóltími” aftur á móti, er miðaður við hina ímynduðu sól. Til skýringar má geta þess að það er aðeins á tveimur dögum á árinu — á jaíndægrum haust og vor — að “meðal sóltími” og réttum sóltíma ber saman, því á þeim tveim dögum aðeins er buglínan eða sólargangslín- an vfir miðjarðarlínunni.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.