Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Síða 27
ALMANAK
27
góðhugiir hans í garð samferðasveitarinnar, og er það í
fullu samræmi við hina ríku og víðfeðmu mannást, sem
honurn er í brjóst borin.
Einnig hefir á seinni árum komið út í blöðum og tíma-
ritum vorum í Vesturheimi sægur af ágætum þýðingum
eftir Sigurð af erlendum kvæðum (einkum enskum og
amerískum), enda er hann óvenjulega lipur og orðhagur
þýðari; hann á í ríkum mæli hæfileikann til þess að gera
þýðingar sínar íslenzkar að blæ og orðavali. Meðal meii i-
háttar þýðinga hans frá seinustu árum má, t.d. nefna hið
merka og stórbrotna kvæði “Núverandi tímamót” eftir
ameríska skáldið James Russell Lowell (Jólablað Heims-
kringlu 1945, einnig í Lögbergi) og hið víðfræga og marg-
dáða kvæði Rudyards Kipling “Eftir Hátíðahöldin” (í
60 ára afmælisblaði Lögbergs 1947). Lokaerindi hins fyrr-
nefnda er gott dæmi þess, liversu fimum höndum og hög-
um er um þá vandasömu þýðingu farið:
“Brautin liggur upp og áfram,
ef þú leitar sannleikans;
þeir sem rétti og frelsi fagna,
fylkjast undir merki hans.
Fylgjum dæmi feðra vorra
—fortíð þeim að baki stóð.—
Æstan vetrarsjóinn siglum,
sannleik kennum vorri þjóð.
Framtíð lykill enginn opnar
ataður með ryðgað blóð.”
Það er því harla umfangsmikið, sem eftir Sigurð Júl-
íus Jóhannesson liggur af ritstörfum, og eru þó ótaldar
hér að framan hinar fjölmörgu greinar hans um margvís-
leg efni, sem birtst hafa, utan ritstjórnartíðar hans, í