Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 29

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 29
HALDOR PRÓFESSOR GÍSLASON Eftir séra Guttorxn Guttorrasson Á síðasta sumri andaðist í borginni Minneapolis ágæt- ur maður af íslenzku bergi brotinn, Haldor B. Gíslason, lengi prófessor við háskóla Minnesotaríkis. Haldor hafði getið sér hinn bezta orðstír og aflað þjóð sinni heiðurs á raeðal háskólamannaíþessulandi; en Vestur-íslendingar munu lítið hafa til hans þekkt—allt of lítið, finnst mér. Eg tel það ekki nema skvlduverk, og helzt í ótíma unnið, ef mér tækist nú að kynna hann löndum mínum. Haldor kom barnungur til þessa lands með foreldrum sínum, Bimi Gíslasvni og seinni konu hans Aðal- björgu Jónsdóttur, frá Haugsstöðum í Vopnafirði. Björn var í fremstu bænda röð austan lands; bjó fyrst að Grímsstöðum á Fjöllum; flutti þaðan í Haugstaði og gjörðist brátt leiðandi maður með Vopnfirðingum. Hann var danne- brogsmaður. Aðalbjörg var mesta heiðurskona, greind, göfug og trygg í lund og manni sínum í öllu samboðin. Sóknarpresturinn, séra Halldór Jónsson, prófastur að Hofi, var í góðu vinfengi við hjónin á Haugsstöðum. Þegar þeim bættist sonur í barnahópinn, 12. dag ágúst- Haldor Gíslason

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.