Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 30

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 30
30 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: mánaðar, árið 1875, gáfu þau sveininum nafn séra Hall- dórs. Prestur kunni það vel að meta. Hann kvað við nafna sinn þrévetran vísu þessa: Halldór verði heillabarn, hollur, vinsæll, þægur, siðprúður og sómagjarn, solli heims fjarlægur. Vísuna geymdi Haldor í minni æfilangt; og það er alls ekki ólílegt, að þessar heillaóskh hafi mótað hugarfar hans að einhverju leyti þegar í barnæsku. Um þessar mundir fór Björn að hugsa til Ameríku- ferðar eins og landar hans margir fleiri. Ekki verður þó sagt að fátæktin hafi synjað honum vistar á ættjörðinni. Björn var í góðum efnum. En árferði var stirt. Hann misti hundrað fjár í hríðarbyl árið 1878. Auk þess hafði eldgos og öskufall farið illa með jarðargróður sumstaðar á Austurlandi. Illeypti það í marga óhug sem meiru mun hafa valdið um vesturfarh en tjónið sjálft. En fyrir Birni mun það hafa ráðið mestu, að hann bjóst við að geta trygt börnum sínum betri framtíð í Vesturheimi. Árið 1879, í ágústmánuði, fluttu þau Björn og Aðal- björg með barnahópinn vestur um haf til Minnesota og settust að í hreppnum Westerheim í Lyon héraði. Gjafa- lönd voru þá upptekin á því svæði, en Björn keypti af Eiríki Bergmann heimilisréttinn að landi hans fyrir 900 dali. Þótti það vel borgað í þá daga. Eignarréttinn fékk hann vitaskuld hjá Bandaríkjastjórn eftir þrjú ár. Á landinu var bjálkahús lítið; en Björn lét þegar um haustið reisa timburhús. Það var vandað og rúmgott eftir því sem þá tíðkaðist, og kom í góðar þarfir byggðarmönn- um ekki síður en fjölskyldunni. Tveim árum áður höfðu frumbúarnir íslenzku í Westerheim stofnað skólahérað að

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.