Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 32
32
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
fór Haldor á skóla í Minneota fyrst einn vetur, og síðan
nokkra vetur í Marshall, því að þar var þá eini miðskólinn
í því nágrenni. Tók hann þar burtfararpróf vorið 1896,
og innritaðist það haust í háskóla Minnesotaríkis.
Haldor kom í háskólann með ágætt veganesti, náms-
gæfur miklar samfara metnaði og mannkostum. Komst
því brátt í vinsældir. Hann lagði sérstaka stund á ræðu-
list, og.með góðum árangri; var hann settur til þess með
þremur skólabræðrum að kappræða við fjórmenninga frá
öðrum skólum í Minnesota og víðar, meðal annars frá
ríkjaháskólum tveimur, þeim í Michigan og Iowa. Þeir
félagar gátu sér góðan orðstír á þeim vettvangi. Haldor
ekki sízt þótti hann einkum ráðspakur í undirbúningi, og
var því mikið sókst eftir leiðbeiningum af hans hendi í
þeirri grein, þegar á námsárunum. Hann hafði nemenda
hóp í kvöldskóla, kenndi þeim meðal annars ritlist og
ræðuflutning, en launin komu í góðar þarfir við skóla-
námið. ;
Til að létta kostnaðinn leigðu þeir liúsnæði saman,
háskólanemendur þrír frá Vesturhehnsbyggð, Haldor og
Björn bróðir hans og John Holme síðar blaðamaður; en
Ólöf systir þeirra Haldórs hélt hús fyrir þá.
Haldor tók Bachelor of Arts próf vorið 1900. Var hann
síðan skólastjóri í Lake Benton eitt ár, tók þá jafnframt
að lesa lög, en slepti þó ekki tökum á ræðulistinni. Haust-
ið 1902 hélt hann austur til Boston, stundaði nám við
Emerson School of Oratory, og síðan á Harvard Sununer
School um sumarið. Á næsta ári, 1904, tók hann Bachelor-
próf í lögum við háskólann í Minnesota.
Lítið sem ekkert fékkst þó Haldor við lögmannastarf *
um æfina. Hann vann hjá vátryggingarsala næstu þrjú
árin og mun þá hafa kent í kvöldskóla jöfnum höndum;
en árið 1907 var hann ráðinn til kenslu við háskóla Min-
nesotaríkis. Við þá stofnun vann Haldor sitt æfistarf.
Fyrstu árin var hann prófessor í ræðulist við háskól-
1