Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 48

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 48
48 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: þess að ráða bót á þeim vandkvæðum, og sýnir það, hvers trausts hann naut af hálfu velunnara þeirra menningar- mála. Þá hefir hann, sem vænta mátti, verið ágætur stuðn- ingsmaður kirkju sinnar og kirkjufélagsins lúterska, og sérstaklega látið sér annt um sunnudagsskólastarfið. Það er því auðsætt, að Jón K. Ólafsson á sér að baki margþætta og merka þátttöku í opinberum málum, bæði heima í héraði sínu og utan vébanda þess. Hafa þau störf verið honum vel að skapi, enda hefir hann rækt þau af mikilli alúð og trúmennsku. Það er einnig í fullu sam- ræmi við heilsteypta skapgerð hans, því að hann er mað- ur fastur í lund, góðgjam en þungur á bárunni, íhalds- samur í skoðunum, en fús til að leggja hvex-ju því máli lið, sem hann telur horfa til almennings heilla. Framkona hans og þátttaka í félagsmálum hafa verið honum og ætt- stofni hans til sæmdar, en héraði hans og ríkisheildinni til gagnsemdar.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.