Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 52

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 52
52 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: manndáða og vitsmuna manni fyrir hugskotssjónum, Arnhvast en góðmannlegt augnaráð Sigríðar Helgason getur ekki annað en æ staðið manni fyrii' hugskotssjónum. Jónas hefur verið hið mesta prúðmenni og svarað- kalli skyldunnar sem fslendingur og þegn síns nýja föð- urlands (Canada) sem og heimilisfaðir, og félagsþegn í sínu umhverfi sem best getur, og sérstaklega góður styrktarmaður kirkju og safnaðar starfs, og þar voru hjón- ir sem annarstaðar samhent. Hjónabandið var blessunaríkt og farsælt og að koma á þeirra myndarlega heimili var sem maður væri komin á friðarhöfn. Kona nákomin sem vel þekkti til hefur sagt mér að hún hafi aldrei heyrt þau tala ónota orð til hvors annars. Þau vom samhent í því að hjálpa og gjöra gott, en létu lítið á því bera, eins og þeim er gjarnt sem ekki eru fyrst og fremst að hugsa um lof heimsmannanna. Sem þjóðræknis íslendingar hafa þau hjón staðið mjög framarlega í flokki. Jónas hefur sótt fslendingadaga og þjóðræknishátíðir íslendinga vítt um byggðir þessa lands, og fjölskyldan á í sögu sinni þrjár íslandsferðir sem ekki munu mörg dæmi til um alþýðufólk. Sigríður fór heim 1914 og sonur hennar Kristján. Jónas fór heim 1920, og Guðlaug dóttir þeirra (Mrs. G. Jóhannesson) á- samt syni sínum George fór heim 1930. Segir Guðlaug um þessar ferðir, “Öll höfðum við ósegjanlega gleði og gagn af að fara heim, og rifjuðum oft upp ýmislegt frá þeim tímum. Pabbi og mamma og eg höfðum allt af bréfaskifti við ættingja heima og pabbi gjörir það enn. Þegar eg sá fsland í fyrsta sinn og hitti ættfólk mitt þar, fannst mér eg þekkja alla, því foreldrar mínir töluðu svo oft um allt og alla heima.” Jónas kom til Argylebyggðar eftir að landnámi var þar lokið, stóð því ver að vígi en þeir sem fyrst komu og náðu ókeypis löndum, þó ýmislegt væri ei'fiðara á fyrstu ámm, kom hann ár sinni vel fyrir borð. Kom stórri fjölskyldu til manns og varð efnalega sjálfstæður. Hann

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.