Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 58

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 58
58 ÓLAFUR S. THORGEIRSSON: Og með sanni má segja , að skáldið hafi hér lýst sjálf- um sér ágætlega, hinum mikla landnámsmanni í íslenzk- um skáldskap, brautryðjanda í bókmenntum vorum og langskyggnum vökumanni. Allt þetta varð mér ríkt í huga, er eg stóð við gröf hans lýðveldishátíðardaginn. En eg minntist eigi síður skáld- spekingsins, hins mikla hugsuðar, er glímdi djarflega við hin dýpstu rök, tilverunnar í kvæðum sínum. Hvort sem menn aðhyllast einhyggju og algvðistrú hans eða eigi, þá er hún óneitanlega bæði háskáldleg og fögur þessi lýsing hans á höfundi tilverunnar: “Nú lítur hann augum hið almáttka vald. Eilífðar kvrrð býr hans höfuðfald. Vetrarbrautin er belti um hans miðju, en blindninnar nótt er skör við hans fald. Hjartað er algeimsins sólna sól, þar segullinn kviknar í fmmeldsins smiðju. Hans þanki er elding, en þruma hans orð. Allt þiggur svip og afl við hans borð. Stormanna spor eru stillt í hans óði; stjarnanna hvel eru korn í hans blóði. Hans bros eru geislar og blessuð hver storð, sem blikar af náð undir ljóssins sjóði.” Djúp lotning fyrir almættinu bxýst fram í þessari mik- ilfenglegu lýsingu skáldsins, enda var hann gæddur frá- bærri glöggskvggni á innsta kjama tniarinnar, þá auð- mýkt hjartans, sem er fyrsta skilyrði hins sanna andlega þroska; því segir hann í kvæðinu “Hnattasund”:

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.