Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 60

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 60
ÞJÓÐLEGUR FRÓÐLEIKUR UM SÖGU-GUÐMUND OG EIRIK SON HANS Eftir Guðmund Jónsson frá Húséy Um aldamótin 1800 bjó sá maður í Bessastaðagerði í Fljótsdal, er Guðmundur hét. Hann var Magnússon, en um ætt hans og afkomendur veit eg mjög lítið. Þó átti hann tvo sonu, Ehík, sem hér verður getið, og Jón. Dóttir Jóns mun hafa verið seinni kona Ólafs prests Indriðasonar á Kolfreyjustað, því að Jón Ólafsson telur Guðmund langafa sinn í Endurminningum sínum í Iðunni (1915). Þessir feðgar, Guðmundur og Eiríkur, voru orðlagðir fyrir sögur þær, er þeir sögðu af afreksverkum sínum, því þær þóttu nokkuð stórkostlegar. Vel má vera, að þeir hafi sagt þær af glettni, öðmm til skemtunar, en flestir hugðu þær sprottnar af sjálfhælni. Um Jón heyrði eg engar sagnir í þessa átt. Eg heyrði margar þessar sögur, þegar eg var ungling- ur, en flestar eru þær nú gleymdar. Þó man eg nokkrar, sem gamall maður sagði mér. Þær eru mér svo minnis- stæðar, vegna þess hann sagði svo skemtilega frá. Sá hét Magnús Guðmundsson; hann hafði alist upp í Fáskrúðs- firði, og kynnst þar Eiríki Guðmundssyni. Hann lét ætíð sögukappann tala sjálfan og því gjöri eg svo. Guðmundur Magnússon sagði svo frá: 1. “Það var einu sinni, þegar eg bjó í Bessastaða- gerði, að allt heimafólk mitt fór til kirkju á sunnudag.

x

Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar
https://timarit.is/publication/400

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.