Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Qupperneq 69
ALMANAK
69
að í St. Paul, Minn., vekur mikla athygli; en fulltrúar frá
39 þjóðum tóku þátt í hátíðinni. Var þar sérstök deild
fyrir Island með ýmsum sýningarmunum þaðan; íslenzk-
ir eftirlætisréttir voru þar einnig á boðstólum. Var það
Heklu-klúbburinn, íslenzka kvenfélagið í Minneapolis og
St. Paul, sem hlut átti að Islands-sýningunni. Mrs. Ingi-
björg Björnson (kona Gunnar B. Björnson) hafði umsjón
með sýningarskálanum, en Mrs. G. T. Athelstan (kona
Tryggva Athelstan (Aðalsteinssonar) umsjón með mat-
sölunni.
Maí—Á alþjóðasamkomu í Vancouver, B. C. (“The
First Dommion Folk Festival”), er haldin var í byrjun
mánaðarins og 22 þjóðflokkar tóku þátt í með sýningu
þjóðbúninga sinna og söng þjóðsöngva sinna, kom Miss
Margaret Sigmar fram fyrir hönd Islendinga, og skaraði,
að dómi stjórnarnefndar, fram úr öllum öðrum þátta-
kendum. Fóru Vancouver-blöðin hinum lofsamlegustu
orðum um söng hennar og framkomu alla.
6. maí—Fjölmennur safnaðarfundur Fyrstu lútersku
khkju í Winnipeg samþykkir einum rómi að veita sókn-
arprestinum, séra Valdimar J. Eylands, leyfi til ársdvalar
á Islandi í skiftum við séra Eirík Brynjóífsson á Útskál-
um, er þjóni Fyrsta lúterska söfnuði til jafnlengdar. Kom
séra Eiríkur ásamt fjölskvldu sinni vestur um haf seint
í júní-mánuði, en séra Valdimar og fjölskylda hans fóru
til Islands mánuði síðar. Er með prestaskiftum þessum
brotið blað í sögu menningarlegra samskifta Islendinga
austan hafs og vestan.
Maí—Eftirfarandi nemendur af íslenzkum ættum luku
námi á fylkisháskólanum í Saskatchewan (University of
Saskatchewan):
Bachelor of Arts:
Lorne Douglas Indridason, Oxbow, Sask.
Hjörtur Björn Jónas Leó, Saskatoon, Sask.