Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Síða 72
72
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
Maí—Harold A. C. Johnson (sonur Prófessors Skúla
Johnson og frúar hans í Winnipeg) hlýtur $450. náms-
verðlaun til framhaldsnáms í jarðfræði frá vísindastofn-
inni National Research Council.
Maí—Málverkasýning Emiles Walters listmálara á
hinu kunna listasafni, Munson Gallery í New Haven,
Connecticut, heimaborg Yale-háskólans, vekur mikla
athygli.
Maí—Prófessor Skúli Johnson, forseti deildar Mani-
toba-háskóla í klassiskum fræðum, kosinn tíl fjögra ára í
stjómarnefnd vísindafélagsins Humanities Research
Council of Canada, sem vinnur að eflingu fræði kanna í
bókmenntum, heimspeki og sagnfræði.
Maí—Frétt frá Toronto hermir, að Gústaf Kristjáns-
son (sonur Hákonar og Guðnýjar Kristjánsson í Wynyard,
Sask.) hafi hlotið stöðu sem umsjónarmaður útvarpsflutn-
ings hjá Canadian Broadcasting Corporation þar í borg.
Hann lauk prófi í þeim greinum með heiðri á Academy
of Radio Arts í Toronto og vann jafnframt meiriháttar
námsverðlaun.
Maí— Hildigunnur Eggertsdóttir, frá Skúfum í Vind-
hælishreppi í Plúnavatnssýslu, lauk prófi við Success
Businese College í Winnipeg og hlaut verðlaunapening
úr gulli fyrir frábæra tækni í vélritun.
Maí—Stórblöð í Toronto fara miklum lofsyrðum um
píanó-leik Miss Öldu Pálsson á hljómleikum, er hún hélt
í sambandi við fullnaðar-próf sitt í hljómlist á Toronto
Conservatory of Music. (Um ætt hennar og fyrri náms-
feril, sjá Almanak síðasta árs, bls. 83).
Júní—Skýrt frá því, að Sögufélag Manitobafylkis hafi
hlutast til uin það, að Wilhelm Kristjánsson, sem er starfs-
maður við menntamáladeild fylkisins, verði um hríð veitt
lausn frá starfi sínu til þess að semja í megindráttum sögu
íslenzkra landnema innan fylkisins, og var honum jafn-
framt veittur $1500. styrkur til söguritunarinnar.