Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 73
ALMANAK
73
Júní—Um þær mundir flutti stórblað í Montreal grein
um Miss Ingibjörgu Hallson (dóttir Ólafs Hallson kaup-
manns og Guðrúnar konu hans í Ericksdale, Man.), sem
vakið hefir á sér mikla athygli vegna fágætra hæfileika
sinna við kennslu heymarleysingja og starfar við MacKay
Institute School for the Deaf í Montreal.
ö.-júní—Guðfræðikandidat Ernest Johnston, sonur Paul
Johnston (látinn fyrir allmörgum árum) og Helgu konu
hans í Winnipeg, vígður til þrests innan Sameinuðu Kirkj-
unnar (United Church).
7. júní—Sjötíu ára hjúskaparafmælis landnámshjón-
anna Kristjáns Kristjánssonar og Svanfríðar Jónsdóttur,
að Eyford, N. Dak., minnst með fjölmennum og virðuleg-
lun mannfagnaði, enda hafa þau um langt skeið skipað
virðingarsess mikinn í bygðinni. Bámst þeim fjöldi af
heillaóskum víðsvegar að, meðal annars frá herra Harry
S. Trueman, forseta Bandaríkjanna. Kristján er 97 ára að
aldri, en Svanfríður 92 ára. Þau fluttust vestur um haf til
Nýja-lslands sumarið 1878, árið eftir til Pembina, N. D.,
og fáum árum síðar til íslenzku byggðarinnar í Pembina-
héraði.
8. júní—Hlaut Ása Jónsdóttir frá Ásum í Austur-Húna-
vatnssýslu, meistara-nafnbót í uppeldis- og sálarfræði
(Master of Science in Education) á ríkisháskólanum í
Norður-Dakota (University of N. Dak.) með ágætiseink-
unn. Fjallaði prófritgerð hennar um íslenzk skólamál.
13.-17. júní—Sextugasta og þriðja ársþing hins evang-
ehska lúterska khkjufélags Islendinga í Vesturheimi hald-
ið að Mountain og Garðar, N. Dak. Prestvígðir voru á
þinginu guðfræðingarnir Eric H. Sigmar (sonur Dr. Har-
aldar og Margrétar Sigmar), sem verður prestur íslenzku
safnaðanna í Argyle, Man., og Arthur S. Hanson (af norsk-
umættum), er vígðist til safnaðanna í Blaine og á Point
Roberts, Wash. Séra Egill H. Fafnis, ritari kirkjufélags-
ins um allmörg undanfarin ár, var kosinn forseti þess í