Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Qupperneq 74
74
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
stað dr. H. Sigmars, er baðst undan endurkosningu.
15.-21. júní—Lýðveldisdagur Islands haldinn hátíðleg-
ur með fjölmennum samkomum í Vancouver, B.C., Chi-
cago, Blaine og Seattle, Wash., að Mountain, N. Dak., og
Hnausum, Man. Meðal ræðumanna á síðastnefna staðn-
um var Árni Bjarnason bókaútgefandi frá Akureyri.
Júní—Um það leyti var J. K. Laxdal, sem undanfarin
ár hefir verið skólastjóri að Gimli, skipaður yfirkennari
við vísinda-deild kennaraskóla Manitobafylkis.
18. júní—'Tuttugu og fimm ára afir.ælís þjóðræknis-
deildarinnar “ísland” í Brown, Man., minnst með fjöl-
mennu hátíðarhaldi. Þorsteinn J. Gíslason hafði sam-
komustjóm með höndum, en aðrir ræðumenn voru Vil-
hjálmar Ólafsson, Karl Thorkelsson, skólastjóri í Morden,
John B. Johnson, sveitarráðsmaður, og dr. Richard Beck,
er flutti aðalræðuna. Núverandi embættismenn eru: Vil-
hjálmur Ólafsson, forseti, Mrs. Guðrún Tómasson, ritari,
Þorsteinn J. Gíslason, féhirðir og Jónatan Tómasson, fjár-
málaritari. Deildin er þó rúmlega ári eldri (stofnuð 12.
febr. 1921), en afmælishátíðahaldinu hafði frestað verið
af ýmsum ástæðum.
22.-24. júní—Tuttugasta og þriðja ársþing Bandalags
lúterskra kvenna haldið í sumarbúðum bandalagsins að
Húsavík, Man. Áður þing hófst, fór fram vígsluathöfn
samkomuskala bandalagsins, sem helgaður er minningu
hermanna af íslenzkum ættum, er féllu í heimsstyrjöld-
unni fyrri og síðari. Séra Skúli Sigurgeirsson stjómaði
athöfninni, séra B. A. Bjarnason flutti minningarræðuna,
og séra E. H. Fafnis, forseti kirkjufélagsins lúterska, vígði
skálann. Mrs. Ingibjörg J. Ólafsson var endurkosin forseti
Bandalagsins.
Júní—W. J. Lindal héraðsréttardómari skipaður for-
maður atvinnumálanefndarinnar í Canada.
26.-30. júní—'Tuttugasta og fimmta ársþing Hins sam-
einaða kirkjufélags Islendinga í Norður-Ameríku haldið