Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Síða 77
ALMANAK
77
B. J. Brandson, er áratugum saman var forystumaður í
málefnum þeirrar stofnunar. Séra Sigurður Ólafsson
stýrði athöfninni, dóttursonur dr. Brandsons, Dean Hills-
man, afhjúpaði myndina, og Dr. Baldur H. Olson hélt
minningarræðuna. Stutt ávörp fluttu H. A. Bergmann
yfirréttardómari og séra E. H. Fafnis kirkjufélagsforseti.
Ágúst—Hjalti Pálsson, sonur Páls Zóphóníassonar al-
þingismanns og Guðrúnar Hannesdóttur konu hans í
Reykjavík, lauk, fullnaðarprófi í landbúnaðarverkfræði
við Iowa State College, Ames, Iowa, með hárri einkunn.
10. sept.—Hélt Snjólaug Sigurdson píanó-leikari hlóm-
leika í Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, að tilhlutun Ice-
landic Canadian Club, og hlaut góða dóma fyrir fram-
mistöðu sína; hún stundar framhaldsnám í New York.
Sept.—Samkvæmt blaðafregnum, hafði Hjörvarður
Ámason listfræðingur, sonur Sveinbjörns Árnasonar (lát-
inn fyrir allmörgum árum) og Maríu konu hans í Winni-
peg, nýlega verið skipaður prófessor við nýstofnaða list-
fræðideild við ríkisháskólann í Minnesota og formaður
hennar; er hann maður víðmenntaður í þeim fræðum og
hafði áður kennt þau á ýmsum öðmm Bandaríkjaháskól-
um.
Sept—Frank Thorólfson, sonur Mr. og Mrs. Halldórs
Thorólfson í Winnipeg, sem stundað hefir framhaldsnám
í hljómlist við Chicago Musical Colleg, Chicago, 111., hlýt-
ur Oliver Ditson námsstyrkinn, að upphæð $1000., til
frekara náms í þeirri grein.
Sept.—Jóns Ólafsson stáliðnaðar-verkfræðingur, sem
um 30 ára skeið hafði gegnt hárri ábyrgðarstöðu hjá Vul-
can Iron Works stáliðnaðar-fyrirtækinu í Winnipeg, lætur
af því starfi; hann hefir getið sér mikinn orðstír fyrir
uppfundningar í fræðigrein sinni og samið merkar vís-
indalegar ritgerðir um hana.
17. sept.—Átti Páll S. Pálsson, skáld og leikari í Win-
nipeg, 65 ára afmæli. Jafnfi-amt því að skipa vel sess sinn