Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Qupperneq 81
ALMANAK
81
NÓVEMBER 1946
10. Jóhanna Soffia Thorvvald skáldkona, ekkja Þorvaldar Gunn-
arssonar Thorwald, að heimili sínu í Stillwater,Minn. Fædd
að Valdalæk á Vatnsnesi í Húnavatnssýslu 16. ágúst 1861.
Foreldrar: Jóhannes Sveinsson og Margrét Jónsdóttir. Fluttist
vestur um haf með manni sínum til Canada aldamótaárið, en
eftir stutta d\öl þar suður til Stillwater. Sumt af skáldskap
hennar birtist i vestur-islenzku vikublöðunum.
12. Öldungurinn Árni Árnason, á elliheimilinu “Betel” að Gimli,
Man. Fæddur 18. apríl 1863 á Espihóli í Eyjarfjarðarsýslu.
Foreldrar: Árni Thorsteinson og Ingibjörg Sigurðardóttir.
Hafði verið búsettur i Canada í 33 ár, lengstum í grennd við
Leslie, Sask.
15. Bjarni Ólafsson, fiskiútvegsmaður frá Selkirk, druknaði í Win-
nipegvatni. Fæddur á Sauðarkróki 12. sept. 1903, sonur Hin-
riks Árnasonar og Kristínar Bjarnadóttur Ólafssonar. Kom
vestur um haf 1909 til móður sinnar, og voru þau framan af
árum búsett í Arborg, en síðan 1921 í Selkirk, Man.
21. Jónína Guðjónsdóttir Thordarson, ekkja Inga Thordarson, að
heimili sínu á Gimli, Man. Fædd 1878 í Kálfshaga í Arnes-
sýslu. Foreldrar: Guðjón Jónsson og Rannveig Guðmunds-
dóttir. Kom til Canada árið 1902.
22. Landnámsmaðurinn Tímóteus Guðmundsson, að heimili sínu
i grennd við Elfros, Sask. Fæddur 10. júní 1867 á Litla Holti
í Saurbæjarhreppi í Dalasýslu. Foreldrar: Guðmundur Hann-
esson og Anna Brandsdóttir. Fluttist til Vesturheims tvítugur
að aldri. Þau hjón (Þorbjörg kona hans dó í janúar 1945) bjug-
gu fyrst í N. Dakota, fluttu til Brown-byggðarinnar í Mani-
toba 1901, en námu sex árum siðan land í Vatnabyggðum
skammt frá Elfros.
25. Öldungurinn Haraldur Sigurðsson Hólm, að heimili dóttur
sinnar, Mrs. W. S. Eyjólfson að Víðir, Man. Fæddur 14. maí
1857. Foreldrar: Sigurður Bárðarson og Arnbjörg Jónsdóttir
á Æsustöðum í Eyjafirði. Um langt skeið bóndi í Viðirbyggð
(Sjá landnámsþáttu Magnúsar Sigurðssonar frá Storð, Alm-
anak, 1933.)
27. Laufey Eastman, kona Eiríks J. Eastman í grennd við Elfros,
Sask., á sjúkrahúsinu í Saskatoon. Fædd að Hnausum, Man.,
20. marz 1889. Forldrar: Baldvin Jónsson og Arnfríður Jóns-
dóttir.
DESEMBER 1946
11. Guðrún (Rúna) Pauline Magnússon, frá Keewatin, Ont., á
sjúkrahúsinu í Kenora. Sextíu ára að aldri, fædd á Islandi;
giftist eftirlifandi manni sínum, Samuel Magnússon, í júní
1906, stuttu eftir að hún fluttist vestur um haf. Hafa verið