Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Side 87
ALMANAK 87
árum og hafði átt heima í Gladstone-byggðinni í Manitoba.
APRÍL 1947
2. Guðfinna Jónsson, ekkja Björns Jónsson, á elliheimilinu “Bet-
el” að Gimli, Man. Fædd í Saurbæjarsveit í Dalasýslu 23.
nóv. 1855. Foreldrar: Sigurður Ólafsson og Seselía kona hans.
Hafði verið búsett á Gimli rúmlega 46 ár.
2. Ólína Theodóra Erlendsson, ekkja Erlends Erlendsson, á elli-
heimilinu “Betel” að Gimli, Man. Fædd að Elliða í Staðar-
sveit 4. apríl 1858. Foreldrar: Guðmundur Stefánsson hrepp-
stjóri og Anna Sigurðardóttir. Fluttist \estur um haf með
manni sínum 1889 og voru síðan um langt skeið búsett í
Geysirbyggðinni í Nýja-lslandi. Forystukona í félagsmálum
sveitar sinnar.
15. John Axel Stevens, frá Sturgeon Creek, á Deer Lodge sjúkra-
húsinu í Winnipeg., 55 ára að aldri. Fæddur af íslenzkum
foreldrum í Churchbridge, Sask.
15. Ólína Sigurbjörg Isfeld, að heimili sínu í grennd við Húsavík,
Man. Fædd 1. ágúst 1874 að Nesi í Aðal-Reykjadal; kom ung
að aldri til Vesturheims og settist að í Nýja-lslandi.
20. Thórður Thórðarson, á elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man.
Fæddur 3. jan. 1868 í Brunahvammi í Vopnafirði í Norður-
Múlasýslu. Foreldrar: Thórður Thorvarðson og Kristín Sveins-
dóttir. Kom til Þingvallabyggðar 1886 og átti þar heima til
1930, en síðan vistmaður á “Betel”.
23. Sveinbjörg Laxdal, ekkja Gríms Laxdal fyrrum verzlunarstjóra
og landnámsmanns, á elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man.
Fædd á Seyðisfirði 17. des. 1863. Foreldrar: Torfi Jónsson
og María Bjarnadóttir. Fluttist vestur um haf til Saskatchewan
1909.
26. Páll Magnússon, að heimili sínu í Selkirk, Man., 89 ára að
aldri. Hafði um langt skeið átt heima í Selkirk.
26. Grimur J. Magnússon, að heimili sínu i Winnipeg. Fæddur í
Reykjar ík 1871, en kom vestur um haf fyrir 59 árum og hafði
lengst af átt heima í Winnipeg.
27. Guðríður Anderson, kona Eiríks Anderson, að heimili dóttur
sinnar í Blaine, Wash. Fædd 6. okt. 1869 að Stóraskógskoti
í Miðdölum í Dalasýslu. Foreldrar: Jón Jónsson og Helga
Jónasdóttir. Fluttist til Vesturheims 1887. Guðríður og Eiríkur
námu land á Point Roberts, Wash., og voru búsett þar um
50 ára skeið.
28. Árni Jóhannesson, landnámsmaður, að heimili *ínu í grennd
við Leslie, Sask., 73 ára að aldri. Skagfirðingur að ætt. For-
eldrar: Jóhannes Jónsson og Solveig Illugadóttir. Kom vestur
um haf með foreldrum sínum 1883 og ólst upp í N. Dakota,
en nam land í Vatnabyggðum 1906 og bjó þar síðan.