Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Page 93
ALMANAK
93
dóttir. Fluttist \estur um haf til Toronto, Ont., 1878; dvaldi
þar árlangt og siðan jafn lengi í íslenzku nýlendunni við Min-
neota, Minn., en kom til Garðar í landnemahópnum, sem
þangað flutti sumarið 1880. Var hann því einn af allra fyrstu
frumherjum Garðar-byggðar og bjó þar síðan fram á síðustu
ár.
13. Elin Stefanía Finnbogason, ekkja Tobíasar Finnbogasonar, á
elliheimilinu “Betel” að Gimli, Man. Fædd i Hólagerði í Fá-
skrúðsfirði 26. nó\'. 1867. Foreldrar: Kristján Magnússon og
Elísabet Eiriksdóttir. Kom til Vesturheims aldamótaárið.
21. Björg Swainson, kona Ara Swainson, að heimili sinu í Winni-
peg, 46 ára að aldri, dóttir Mr. og Mrs. Björns Anderson,
Baldur, Man.
24. Jón Eyjólfsson landnámsmaður, að heimili dóttur sinnar að
Lundar, Man. Fæddur 29. sept. 1856 á Breiðavaði i Eiða-
þinghá í Suður-Múlasýslu. Foreldrar: Eyjólfur Kristjánsson og
Lukka Gísladttir, systur Björns Gíslasonar á Haukstöðum í
Vopnafirði, síðar í Minneota, Minn. Fluttist til Canada 1878,
en átti framan af árum heima í N. Dak., siðan á vmsum stöð-
um í Manitoba, á Lundar frá 1909. Voru þáu Jón og Guðrún
kona hans í hópi hinna fyrstu, er settust þar að og stofnuðu
og starfræktu fyrsta gistihúsið þar i bæ.
25. Pétur Sigurðsson, búsettur í Winnipeg, á Almenna sjúkrahús-
inu þar í borg, 59 ára gamall. Kom vestur um haf laust eftir
aldamótin og hafði lengst af átt heima í Winnipeg. íþrótta-
maður góður og lét sig mikið skifta þau mál meðal landa sinna.
27. Guðmundur Lambertsen, gullsmiður í Glenboro, Man., að
heimili systur sinnar í Winnipeg. Fæddur í Reykjavík 30. okt.
1880. Foreldrar: Guðmundur Lambertsen gullsmiður og kaup-
maður i Reykja\'ik og seinni kona hans Margrét Steinunn
Björnsdóttir, ættuð úr Fnjóskadal. Kom til Vesturheims 1903,
var framan af árum í Winnipeg, en flutti til Glenboro 1911
og rak þar skrautgripaverzlun og stundaði úrsmiði, jafnframt
því sem hann hafði búskap með höndum. Áhugamaður um
félagsmál.
30. Öldungurinn Þorvaldur Sveinsson, að heimili sinu í grennd
við Húsavík, Man., 89 ára að aldri; hafði dvalið langvistum
vestan hafs og hafði setið landnámsjörð sína i nærri 50 ár;
áhugamaður um héraðsmál.
NÓVEMBER 1947
4. Stefán Sigmar bóndi, að heimili sinu í grennd við Glenboro,
Man. Fæddur í Argyle-byggð, sonur Sigmars Sigurjónssonar,
landnámsmanns þar, ættaður úr Reykjadal. Meðal bræðra hans
er dr. Haraldur Sigmar, fyrr\'. forseti lúterska Kirkjufélags.
5. Þórarinn Gíslason Johnson, drukknaði við bryggju að Gimli.
Fæddur 17. okt. 1902 í Selkirk, Man., þar bjuggu foreldrar