Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1948, Qupperneq 94
94
ÓLAFUR S. THORGEIRSSON:
hans, Gísli og Jónína Johnson, um mörg ár, en fluttust síðar
vestur á Kyrrahafsströnd.
6. Erika Thorláksson, ekkja séra Steingrims N. Torláksson, í
Seattle, Wash., 89 ára að aldri. Fædd í Noregi af merkum
ættum og hét skírnarnafni Erika Rynning. Giftist manni sínum
í Minneapolis 1888 og starfaði síðan, nærri óslitið, ásamt hon-
um meðal fslendinga í Minnesota, N. Dakota og Manitoba
fram á síðustu ár.
7. Stefán Haraldur Bergson, af slysförum, á Almenna sjúkrahús-
inu í Winnipeg, 57 ára að aldri. Foreldrar: Jón og Margrét
Bergson. Hafði mestan hluta ævinnar átt heima í Winnipeg.
8. Þorsteinn Jósep Guttormsson, bóndi í Geysirbyggð í Nýja-
fslandi, á sjúkrahúsinu að Gimli, Man. Fæddur í Krossavík í
Vopnafirði 16. maí 1871. Foreldrar: Guttormur Þorsteinsson
og Birgitta Jósepsdóttir. Meðal bræðra hans eru séra Gutt-
ormur í Minneota, Minn., og Stefán landmælingamaður í
Winnipeg.
12. Kristín Helgason, ekkja Ólafs Flelgason, á heimili sínu í Mik-
ley, Man., 59 ára að aldri. Hún kom vestur um haf með for-
eldrum sínum, Guðmundi Guðmundssyni og Guðrúnu Ólafs-
dóttur, árs gömul til Mikleyjar, og átti þar heima jafnan síðan.
16. Kristín Jónasson, að heimili sínu í Víðirbyggð í Nýja-fslandi
Fædd 30. maí 1887 í Hnausabyggð á landnámsheimili for-
eldra hennar, Jóhannesar Jónasson og Höllu Jónsdóttur.