Fróði - 01.05.1913, Síða 46

Fróði - 01.05.1913, Síða 46
302 FRÓÐI hann gæti sagt nokkuð rjetti hún Roberie borgara höndina og mælti; '“Jeg kýs þegar,” sagði hún í hálfum hljóðum, ‘‘jeg ætla að treysta yður.” Roberic snjcri sjer að La Chesnaye. “Viljið þjer lofa mjer að fara mcð vagnin yðar?” mælti'hann. “Máske þjer vilduð bíða hjer ef að borgarastúlkan kynni að koma hingað aftur, eftir svo sem tvær stundir, þó að það sje mjög ólfk- legt. En það get jeg sagt yður að líf yðar er í veði, cf að þjer fylgið okkur til Lissac.” Aubert La Chesnaye svaraði engu, hann stóð þar sem stein- mynd ein. Svo sótti Roberie hestinn sinn þangað, scm hann hafði bundið hann undir trjánum, en bauð ökumanninum að setjast í vagninn og keyra til Lissac. Fór þá hrollur um La Chesnaye, en ekki gaf hann neitt mcrki af sjer. Svo keyrðu þau niður hæð- ina, en Roberie reið á eftir. Júlfus hjelt í hest Auberts, en hann tók taumana úr hendi hans. “Þið getið farið, allir þrfr”, mælti hann. “Flýtið ykkur til Chasnaye — segið föður mínum hvaða voði sje á fcrðum. Biðjið hann, frá mjer, að búast til að flýja til Englands, bæði vegna móður minnar og systra. Segið að úlfarnir frá París sjeu á ferð- inni, og innan skamms muni lfkt ganga yfir La Chesnaye, sem þið nú hafið sjeð að kom yfir Lissac. Jeg treysti þjer, Júlíus, að telja þau á það að flýja. Til hvers ættu þau að láta líf sitt ? Til hvers ættu þau að vera eftir í Frakklandi ? Til þeSs að láta þessa slátrara, sem kalla sig föðurlands vini, taka sig af lífi eða draga sig til Parfsarborgar á höggstokkinn ?” “En þjer, herra minn, hvað ætlið þjer að gjöra?” stamaði Castillac frarn. “Hvert ætlið þjer að fara ?”

x

Fróði

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fróði
https://timarit.is/publication/427

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.