Fróði - 01.05.1913, Blaðsíða 60
3i 6
FRÓÐI
4 augnatennur (cuspids), 8 framjaxla og 12 bakjaxla. Maðurinn
hefir alveg hina sömu tölu tanna af hverri tegund.
Beri menn nú saman tennur mannsins og tennur dýraflokká
þessara, þá er líkingin h'til með mönnum og grasbftum. Enn þá
ólfkari eru kjötæturnar, og þó eru tennur alætanna ólfkastar tönn-
um manna af þeim öllum.
En beri menn saman tennur mannsins við tennur dýra þeirra,
sem ávexti eta, þá er líkingin algjörlega fullkomin. Tennurnar
eru jafn margar hjá báðum og með sömu gjörð og lögun, nema
livað augnatennur apans standa Iftið eitt fram, svo þeim sje greið-
ara að brjóta hnetur og kjarna.
Þá er hreyfing KJÁLKANNA athugandi. Kjötæturnar
hre>fa kjálkann að eins upp og ofan, eins og þá er skæri klippa,
og þau drekka þannig, að þau lepja með tungunni. En grasbítir
og ávaxtaætur og maðurinn, hreyfa öll lcjálkana á þrjá vegu,
nefnil. upp og ofan, fram og aftur, og svo til hliðar, og öll drekka
þau þannig, að þau svelgja drykkinn en lepja elcki.
Þá eru FÆTUR og HENDUR.
Alæturnar og grasbítirnir eru hófdýr. Kjötæturnar hafa
klær í stað hófa, en maðurinn og dýr þau, sem á ávoxtum lifa,
hafa hendur.
Þó er hvað mest árfðandi að bera saman na:ringarfærin, þessi
aðalgöng fæðunnar um lfkamann, sem er.skir kalla: alimentary
canal.
Hjá kjötætunum er gangur þessi þrefalt lengri en Ifkaminn,
hjá grasbftum, svo sem sauðfje, þrjátfu sinnum lengri en Ifkaminn,
hjá alætum tfu sinnum lengri. En hjá manninum er hann tólf
sinnum lengri.
Þá er það og athugavert, að hjá mönnum, hinum æðri öpum
og grasbftum, er neðsti hluti þarmans pokamyndaður (sacculated)