Muninn - 01.05.1960, Page 23
ANNALL SKOLANS
Þáttur þessi kemur nú í annað sinn fyrir
sjónir lesenda Munins. Nokkuð langt er lið-
ið síðan hann var síðast á ferðinni, og verð-
ur að fara allt aftur til síðasta árs til að ná
þangað, sem frá var horfið síðast. Verður þá
fyrst fyrir jólavaka Hugins, sem haldin var
á Sal skömmu áður en jólaleyfið var gefið.
Séra Benjamín Kristjánsson flutti jólahug-
vekju, Jón Sigurðsson og Guðný Sigurðar-
dóttir lásu upp, blandaður kór og karlakór
M. A. sungu. Vaka þessi þótti fara hið bezta
fram.
Dansleikir.
Skemmtanalíf vetrarins er nú á enda og
tími prófanna er enginn í garð. Þegar dans-
leikir vetrarins eru rifjaðir upp, verður
næst fyrir jólagleði IV. bekkjar, sem fram
fór á Sal 12. des. sl. Var hún vandlega und-
irbúin og fór hið bezta fram. Þar mátti
heyra útvarp M. A., og m. a. kom fram
galdranorn ein ófrýnileg og forn í skapi.
Þótti málrómur hennar minna grunsamlega
mikið á Sigurð Guðmundsson. Um tólf
leytið heimsótti jólasveinn samkomuna og
hafði meðferðis ýmsar skemmtilegar gjafir
handa kennurum. Síðan var dansað af
miklu kappi til kl. hálf tvö, og virtust allir
skemmta sér hið bezta.
Næsti dansleikur var haldinn 16. jan. Að
honum stóð Muninn, og má með sanni
segja, að ritnefnd hafi undirbúið hann á
mettíma. Til skemmtunar var m. a., að Ein-
ar Kristjánsson, húsvörður í Barnaskólan-
um, las upp frumsamda smásögu, og Karl
Guðmundsson leikari flutti bráðsnjallan
gamanþátt. Það ber að harma, að lofsverð
tilraun til kaffiveitinga fór út um þúfur.
Hinn 30. jan. var haldinn dansleikur til
styrktar Carmínu. Þar voru m. a. leiknir
gömlu dansarnir frá kl. ellefu til hálf tólf,
en ekki er mér kunnugt um, hvernig það
mæltist fyrir.
í. M .A. hélt skemmtun 13. febr. sl. Hófst
hún á leikfimisýningu í íþróttahúsinu. Á
Sal flutti Ármann Dalmannsson frumort
ljóð. Þar fór og fram hin árlega verðlauna-
afhending í. M. A. Verður væntanlega skýrt
frá henni í íþróttaþætti, og mun ég ekki
rekja þá athöfn hér.
Laugardaginn 5. marz hélt IV. bekkur
skemmtun á Sal, og voru þar meðal við-
staddra sex nemendur frá M. R., sem stadd-
ir voru hér um þær mundir á vegum nem-
endaskiptanna. Skemmtunin hófst með því,
að Jón Margeirsson kennari las „hroll-
vekju“, sem að mínu áliti stóð alls ekki und-
ir nafni, en Jón á lof skilið fyrir þýðinguna.
Einnig var þarna háð mælskukeppni milli
Óðins og Hugins, og sigraði sá síðarnefndi
með litlum yfirburðum. Samkomugestir
spreyttu sig á að botna til verðlauna, og
reyndist Reynir Vilhjálmsson skálda hlut-
skarpastur. Þarna kom einnig fram ný rokk-
hljómsveit undir stjórn Olafs Ragnars,
söngvari með hljómsveitinni var Brynjar
Viborg.
Árshátíðin
var að þessu sinni haldin að kvöldi sunnu-
dagsins 20. marz. Mikið var skreytt og und-
irbúið fyrir hátíðina, sem liófst kl. 8 í borð-
sal heimavistarinnar. Skólameistari setti
samkomuna, en eftir nokkra kaffidrykkju
og söng steig Hermann Stefánsson í pontu
og flutti erindi, er .hann nefndi „Frá Squatv
Valley“, en Hermann var, sem alkunnugter,
fararstjóri íslenzku skíðamannanna á vetr-
arólympíuleikjunum þar vestra í vetur.
Kunni ltann frá mörgu skemmtilegu og
fróðlegu að segja. Minni íslands flutti Guð-
ný Sigurðardóttir, í þetta skipti var það Ijóð
m u n x n n 95