Muninn - 01.05.1960, Qupperneq 24
eítir Guðmund Arnfinnsson. Minni karla
flutti Nanna Bjarnadóttir, minni kvenna
Hákon Árnason og minni skólans Sigríður
Hannesdóttir. Að lokum liéldu skólameist-
ari og bæjarstjóri stuttar ræður. Á Sal var
dansað til kl. hálf fjögur. Þar skemmtu m.
a. Atlantic kvartettinn og Helena Eyjólfs-
dóttir. Hátalarakerfi það, sem fengið var að
láni fyrir skemmtunina, náði alls ekki til-
gangi sínum og eyðilagði gjörsamlega söng
Helenu. Skreyting skólans fyrir hátíðina
tókst einkar vel, og setustofan var sérlega
vistleg.
Gestir á Sal.
Slæðingur merkra rnanna hefur komið í
Sal eftir jólin. Fyrst er þar að geta Sæmund-
ar á Sjónarhæð, liann kom á Sal 8. jan. sl.
og predikaði þar yfir nemendum. Nokkrum
dögum síðar kom Heiðar Ástvaldsson dans-
kennari, í þetta skipti með gullmedalíu í
viðbót við hinar tvær ,og bauðst til að
kenna nemendum hinar ýmsu danskúnstir
sínar.
Á bindindisdaginn, 1. febrúar, steig Jó-
hann Þorkelsson skólalæknir í pontu og
hélt þar erindi um heilsusamlega lifnaðar-
háttu.
Hinn 11. marz sl. komu allnýstárlegir
gestir á Sal. Voru það fimrn S.-Afríkumenn,
sem komnir voru að boða siðvæðingu. Töl-
uðu fjórir þeirra, tveir svartir og tveir hvít-
ir. Að lokum þakkaði skólameistari þeirn
fyrir komuna með nokkrum vel völduni
orðum. Síðar sama dag sýndu þeir kvik-
myndina „Frelsi“ í Nýja-Bíó. Kvikmynd
Jressa liefur Siðvæðingarhreyfingin látið
gera um ástandið í Afríku á vorurn dögurn.
Úlfur Ragnarsson, læknir í Hveragerði,
kom á Sal hinn 14. marz. Ræddi hann m. a.
um veru sína hér í skólanum fyrr á árum og
varð sérstaklega tíðrætt um Sigurð heitinn
Guðmundsson skólameistara. Úlfur kom
nokkuð víða við, og var mjög skemmtilegt
og upplyftandi að hlýða á hann.
Spurningasalur var 23. marz sl. Er það
mál manna, að sjaldan hafi spurningar ver-
ið jafn lélegar og nú í ár. Er sannarlega illt
til þess að vita, ef húmorinn í skólanum er
orðinn svo lélegur, að enginn treysti sér
lengur til að lauma fyndnum bröndurum í
kassann.
Starfsfræðsludagur var haldinn hér á Ak-
ureyri 3. apríl sl. Olafur Gunnarsson sál-
fræðingur var fenginn til að skipuleggja
hann, og lagði hann leið sína hingað í skól-
ann síðasta dag marzmánaðar og flutti er-
indi um starfsfræðslu og starfsval. Ennfrem-
ur gaf hann nemendum kost á að hitta sig á
kennarastofunni síðar um daginn.
Tónlistar- og bókmenntakynningar.
Hinn 6. des. sl. voru hundrað ár liðin
frá fæðingu Einars H. Kvaran, og var í því
tilefni heldin kynning á verkum skáldsins
að kvöldi lrins 7. sama mánaðar. Hjörtur
Pálsson flutti erindi um skáldið, en Guðný
Sigurðardóttir og Rögnvaldur Hannesson
lásu tir verkum Jress. Einnig var þáttur úr
Lénharði fógeta fluttur af segulbandi, flytj-
endur voru nokkrir nemendur úr efstu
bekkjum skólans.
Tónlistarkynning var haldin á Sal 15.
des. sl. Kynntur var jass. Plötur voru fengn-
ar að láni frá upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjanna. Kynningin var vel sótt. Önnur
tónlistarkynning var haldin í janúar. Lúðra-
sveit Akureyrar lék ýmis sígild lög. Um
áttatíu nemendur sóttu kynninguna.
Nýtt félag
var stofnað í skólanum þann 13. marz. Nafn
þess er Espero og tilgangurinn að efla
esperantoáhuga og esperantojrekkingu með-
al nemenda M. A. Stjórn skipa: Björn
Teitsson, formaður, Kristinn Jóhannesson
og Rögnvaldur Hannesson.
Þá eru senn upptaldir minnisverðustu
atburðir vetrarins. Á öðrum stöðum í blað-
inu má finna upplýsingar um skólaleikinn,
96 m u N I N N