Muninn - 01.05.1960, Blaðsíða 25
hlöðuball III. bekkjar, útkomu Gambra,
íþróttamót o. fl.
Annálsritari vill að lokum þakka nem-
endum og kennurum fyrir skemmtilegan
vetur og óska þeim gleðilegs sumars.
Með beztu heilsan.
R.
Viðbætir.
Hinn 2. apríl sl. héldu 3. bekkingar
skennntun undir nafninu hlöðuball.
Skemmtunin tókst vonunr framar, að því
undanteknu, að ekkert var þar, sem minnti
á hlöðu. Öllu heldur fannst mönnum þeir
vera staddir í verbúð, angandi af tjöru. Þyk-
ir oss 3. bekkingar heldur byltingarsinnaðir.
Skemmtunin liófst með skaupi nokkru,
sem ekkert er nema gott um að segja. Er
sannarlega gott til þess að vita, að svo snjall-
ir húmoristar og söngvarar, sem raun ber
vitni um, skuli vera til í 3. bekk. Þó hefði
mátt færa brandarana í „miðilsfundinum“
í annað form. Slík skrípalæti, sem þar áttu
sér stað, eiga ekki heima á menntaskóla-
skemmtun. Ölkúturinn var skemmtileg til-
breyting og innihaldið hressandi.
4. bekkingur.
BRIDGEÞÁTTUR
Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn
gróskumikið ,,bridge“líf hér í skóla sem í
vetur. Til hvers þessi fjörkippur á rót sína
að rekja, er ekki gott að fullyrða, án efa á
sú lægð, sem málfundafélagið Huginn er
nú í, nokkurn hlut að máli. Þetta er vissu-
lega okkur, sem íþróttina stundum, mikið
ánægjuefni, en öðrum sýnu minna. Því að
ósjaldan heyrir maður þær raddir, að
„bridge“ sé leikur, sem vafasamt sé fyrir
menntlinga að stunda, nema þá mjög í hófi.
En {Dessum röddum get ég ekki verið sam-
mála, en aftur á móti er það ágæt dægra-
stytting og þó nokkuð uppbyggileg íþrótt.
Samt var nú ekki meiningin að hefja
neinn áróður fyrir „bridge“, heldur skal nú
vikið að helztu viðburðunum á því sviði í
vetur.
Fyrri hluta vetrar fór fram tvímennings-
keppni, sem Hjálmar Hjálmarsson og Sig-
urður Karl sigruðu, eftir að hafa tekið svo
örugga forystu í fyrstu umferð, að vart
komu aðrir til greina sem siarurvegarar úr
o o o
því.
Sveitakeppninnar var svo beðið með
nokkurri eftirvæntingu, og var almennt bú-
izt við, að baráttan mundi standa milliV.og
VI. bekkjar. En það fór mjög á annan veg.
Str.ax í fyrstu umferð vann IV. bekkur sveit
VI. bekkjar, og var þá sýnt, að kraftaverk
mundi þurfa til að stöðva þá, þar sem V.
bekkur hafði misst Sigurð Karl. Enda fór
svo, að IV. bekkur vann alla sína keppi-
nauta, en hinar sveitirnar hlutu sinn vinn-
inginn hver. í sveit IV. bekkjar spiluðu
Halldór og Grétar, sem þegar voru orðnir
þekktir sem góðir spilarar, en meira á óvart
komu Cecil og Helgi Frímann, sem gáfu
félögum sínum hvergi eftir, hvað spila-
mennsku snerti, og spiluðu oft betur.
Loks undir vor fór frarn hin árlega
keppni milli MA og KEA. Fóru kaupfélags-
menn með sigur af hólmi, sem og sl. ár.
Einnig kepptu kennarar við nemendur á
tveirn borðum eins og að undanförnu. Fóru
leikar svo, að á fyrsta borði báru nemendur
sigurorð af lærifeðrum, en þar spilaði af
nemenda hálfu blönduð sveit úr V. og VI.
bekk. En á hinu borðinu fóru hinir nýbök-
uðn skólameistarar halloka. Lauk því
þeirri keppni með jafntefli og þóttust nem-
endur nokkuð hafa rétt hlut sinn frá fyrra
ári.
Lýk ég svo þessu rabbi með frómum ósk-
um um enn hækkandi sól Bridgefélags MA.
1 spaði.
M U N I N N 97