Muninn - 01.05.1960, Síða 26
SKAKÞATTUR
Taflfélag MA starfaði að venju á vetrin-
um. Formaður félagsins var kjörinn Hreið-
ar Steingrímsson og gegndi hann því starfi
af skörungsskap.
Starfsemi félagsins var að þessu sinni ekki
eins mikil og oft áður, og stafaði það af ýms-
um óviðráðanlegum orsökum, t. d. var
ákveðið að Júlíus Bogason tefldi fjöltefli
snemma í vetur, en það féll niður sökunr
rafmagnsleysis. Auk þess kom það iðulega
fyrir, að sama kvöldið og teflt var færi fram
keppni í blaki, handbolta eða einhverju
öðru í íþróttahúsinu, og þurfti sami maður-
inn þá oft að keppa á báðum stöðum. Kom
þetta sér oft mjög bagalega, og væri æski-
legt, að hin ýmsu félög hefðu alveg sérstök
kvöld í viku fyrir starfsemi sína og þyrftu
hagsmunir þeirra þá ekki að stangast á.
Tvö mót voru haldin á vetrinum, þ. e. a.
s. einstaklingsmót fyrir jólin og bekkjaskák-
mót eftir jólin, en þessi tvö mót eru nú orð-
in fastur liður í starfsemi félagsins. í ein-
staklingsmótinu voru keppendur aðeins
fjórir, og vantaði þar marga af beztu skák-
mönnum skólans og setti það svip sinn á
mótið. Skákmeistari MA 1960 varð Auðunn
Sveinbjörnsson með 2 v. Var hann vel að
sigrinum kominn.
7 sveitir tóku þátt í bekkjaskákmótinu.
Efst vaið sveit 3. bekkjar c. er hlaut 18 v.
Sigur þessarar sveitar kom nokkuð á óvart,
M U N I N N
Otgefandi: Málfundafélagið Huginn.
Ritstjóri: Már Pétursson
Ritnefnd: Hákon Ámason, Hjörtur Pálsson,
Leó Kristjánsson, ICristinn Jóhannesson.
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Sigurðsson
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
en er engu að síður verðskuldaður. Önnur
varð sveit V. bekkjar, er hlaut 17j/2 v. 3.
varð sveit IV. bekkjar með 16jó> v. Skák-
þátturinn óskar sigurvegurunum til ham-
ingju með þennan árangur. Síðari hluta
vetrar hélt Freysteinn Þorbergsson nám-
skeið í skák hér á Akureyri, og nutu nokkr-
ir skákmenn úr MA hagnýtrar og fróðlegrar
leiðsagnar hans. Skákþátturinn óskar þess,
að skákíþróttin eigi eftir að dafna hér í MA
á næstu árum, því að skákíþróttin er án efa
bezta íþrótt, sem nú er stunduð.
Að lokum skulum við líta á eina stutta
og skemmtilega skák.
Hvítt: Liepnitzky. — Svart: Lasarev.
1. e4 c5
2. Rf3 Rf6
3. e5 Rd5
4. Rc3 e6
5. Re4!? Rc6
6. b3 f6
7. Bb2 fxe5
8. Rxe5 Rxe5
9. Bxe5 d6
10. Dh5f! g6
11. Bb5f Bd7
12. Dh3M dxe5
13. Dxe6f De7
14. Bxd7f Kd8
15. Dxd5 Dxd7
16. Dxe5 Bg7
17. Dg5f Svartur gaf
Til dæmis:
17 Kc8
þá
18. Dxc5f
eða
17 Ke8
18. o-o-o Dd4
19. Rc3 o. s. frv.
Magnús Ing.
98 M U N I N N