Muninn - 01.05.1960, Síða 27
IÞROTTIR
Ú tgarðsgangan fór fram fimmtudaginn
17. marz kl. 3 e. h. Keppendur voru 60 í
karlaflokki og 4 í kvennaflokki. Gangan var
allt í senn: einstaklingskenni, 4-manna og
10-manna sveitakeppni. Leið sú, er gengin
var, er nokkuð frábrugðin því, sem verið
hefur undanfarin ár. Var farið mjög sunn-
arlega og suður fyrir öll hús í Austurbyggð
og þannig niður að íþróttahúsi. Er þetta
lengri leið en venjulega og er tíminn því
rnjög athyglisverður. Færið var fremur við-
sjált og erfitt að smyrja rétt, því að annað
færi var ofan Glerárbrúar en neðan hennar.
Það er eftirtektarvert, að nú kom sér vel að
vera á svigskíðum, helzt með plasthúð, og
skauta alla leið. Þannig voru af 10 fyrstu
mönnum 7 á svigskíðum, en aðeins 3 á
gönguskíðum. Það skal þó tekið fram, að
mjög erfitt er að skauta þannig og krefst
mikillar orku. Veður var mjög gott og gang-
an öll hin ánægjulegasta.
Áhorfendur voru margir og sýndu mikla
þolinmæði, þar sem gangan tafðist um
nærri klukkustund.
Úrslit, karlar:
1. Hákon Ólafsson 5. bekk 14.49 mín.
2. Sigurður Dagbjartss. 6. bekk 15.07 mín.
3. Stefán Jónasson 5. bekk 15.17 mín.
4. Hörður Þórleifsson 4. bekk 15.40 mín.
5. Guðm. Tulinius 3. bekk 15.54 mín.
6. Atli Dagbjartsson 5. bekk 16.16 mín.
7. Hjálmar Jóelsson 5. bekk 16.54 mín.
8. Oddur Sigurðsson 2. bekk 17.36 mín.
9. Björn Bjarnason 3. bekk 17.58mín.
10. Einar Aðalsteinsson 5. bekk 18.28 mín.
4-manna sveitakeppni:
1. 5. bekkur a-sveit .......... 63.16 mín.
2. 3. bekkur a-sveit .......... 72.00 mín.
3. 6. bekkur .......... 77.47 mín.
4. 4. bekkur a-sveit .......... 79.15 mín.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
1.
2.
3.
4.
5. bekkur b-sveit
3. bekkur b-sveit
2. bekkur a-sveit
4. bekkur b-sveit
Lpr. a-sveit
2. bekkur b-sveit
1. bekkur .........
Lpr. b-sveit.......
82.34 mín.
85.51 mín.
88.16 mín.
96.05 mín.
96.08 mín.
103.19 mín.
116.21 mín.
118.18 mín.
10-manna sveitakeppni:
5. bekkur ............. 195.32 mín.
3. bekkur ............. 211.42 mín.
4. bekkur ............. 229.55 mín.
2. bekkur ............. 250.13 mín.
Úrslit, konur:
Stúlkurnar voru ræstar hjá Lundi, og
gengu þaðan sömu leið og piltarnir. —
Keppendur voru aðeins 4 og allar úr fyrsta
bekk, og eiga þær þökk skilið fyrir dugnað-
inn.
1. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
2. Hugrún Hólmsteinsdóttir
3. Svanhvít Jónsdóttir
4. Erla Möller.
KVENNABLAKMÓTIÐ.
í mótinu tóku þátt 6 lið úr öllum bekkj-
um skólans nema fimmta bekk. Voru liðin
nokkuð misjöfn, hvað getu snerti, en eink-
um skáru tvö þau efstu sig úr. Ekki virtist
þetta draga úr áhuga karlmanna á mótinu,
en þeir fjölmenntu mjög öll kvöldin. Má
því með sanni segja, að blakmót kvenna sé
ein vinsælasta íþróttakeppnin bér í skóla.
Mótinu lauk með sigri Landsprófsdeildar,
og er það óvanalegt, að lið úr miðskóladeild
vinni blakið. Sigruðu þær 6. bekk í jöfnum
og skemmtilegum úrslitaleik. í liði Lpr. ber
Karlína Malmquist höfuð og herðar yfir
hinar, að þeim ólöstuðum, en hún sýndi oft
m u N i n n 99