Muninn - 01.05.1960, Blaðsíða 28
mjög góðan leik og getur slegið ótrúlega
fast niður. Annars var liðið jafnt og lék vel
saman. Sigurvegararnir eru þessir: Karlína
Malmquist, Valgerður Valgarðsdóttir, Eva
Röamvaldsdóttir, Áslau° Masfnúsdóttir,
Svala Brjánsdóttir og Jóhanna Kondrup.
Úrslit:
1. Lpr. hlaut ......... 14 stig
2. 6. bekkur hlaut .... 13 stig
3. 3. bekkur hlaut .... 8 stig
4. 4. bekkur hlaut .... 5 stig
5. 2. bekkur hlaut .... 4 stig
6. 1. bekkur hlaut .... 1 stig
HANDKNATTLEIKUR.
Eftir margra ára dvala var handknattleik-
ur vakinn npp aftur hér í skólanum í vetur.
Var keppni í þessari íþróttagrein hætt,
vegna þess að í okkar litla leikfimisal, sem
þó er sá stærsti á Akureyri, þótti of þröngt
til kappleika. Vegna þrengslanna urðu leik-
irnir oft hrein slagsmál, engum til sóma.
Voru því sumir uggandi um, að sama sagan
mundi endurtaka sig. Sem betur fór varð
raunin önnur, og fór mótið fram án telj-
andi meiðsla. Til leiks mættu átta lið, en í
hverju liði eru fimm menn. Margir leikirn-
ir voru fjörugir og tvísýnir, og þóttu lið
Joriðja og fimmta bekkjar sýna beztan leik.
Þriðjubekkingar gengu með sigur af hólmi,
og var það réttlátt, þar sem liðsmenn voru
allir góðir og léku oft prýðilega saman.
Kom sigur þeirra engum á óvart, því að
flestir þeirra, sem eitthvað hafa stundað
handknattleik, eru í þriðja bekk. Liðið var
þannig skipað: Hannes Haraldsson, Ingvar
Viktorsson, Guðmundur Björnsson, Brynj-
ar Viborg, Steinar Þorsteinsson og Aðal-
steinn Ólafsson.
Úrslit: Mörk:
1. 3. bekkur a-lið 14 stig .... 187-73
2. 5. bekkur 12 stig .... 200-119
3. 4. bekkur 10 stig .... 154-118
4. 6. bekkur 8 stig .... 186-138
5. 3. bekkur b-lið 6 stig .... 154-131
6. Lp r. 4 stig .... 140-191
7. 2. bekkur b-lið 2 stig .... 105-229
8. 9. bekkur a-lið 0 stig .... 127-252
KÖRFUKNATTLEIKUR.
Til keppni í körfuknattleik mættu sjö
lið. Hófst keppnin um miðjan febrúar og
lauk snemma í marz. Vakti það sérstaka at-
hygli, að tvö lið kepptu úr miðskóladeild-
inni, og sýndu Jaau bæði mikinn dugnað á
leikvelli, einkum annar bekkur. Er þetta
enn merkilegra fyrir Jiá sök, að í körfu-
knattleik þykir betra að vera langur í ann-
an endann, en margur er knár, þótt hann sé
smár. Mótinu lauk með sigri a-liðs fimmta
bekkjar, og er þetta Jnáðja árið í röð, sem
þeir sigra. Liðið er skipað góðum einstakl-
ingum, sem orðnir eru þaulvanir að leika
saman. Til gamans má geta þess, að í einum
leiknum (hver leikur 30 mín. langur) skor-
uðu Jreir 80 körfur, en fengu á meðan að-
eins 4 hjá sér. Liðið skipuðu: Hjálmar
Hjálmarsson, Sigurður Sigurkarlsson, Vig-
fús Aðalsteinsson, Skúli Johnsen og Hákon
Ólafsson.
Úrslit:
1. 5. bekkur a-lið ........ 12 stig
2. 6. bekkur .............. 10 stig
3. -4. 5. bekkur b-lið ......... 7 stig
3.-4. 3. bekkur a-lið ......... 7 stig
5. 3. bekkur b-lið ......... 4 stig
6. Lpr...................... 2 stig
7. 2. bekkur ............... 0 stig
í. M. A. hefur í vetur sent körfuknatt-
leikslið á 1 jölda móta innan í. B. A. Hefur
liðið staðið sig eftir vonum vel. í Norður-
landsmeistaramóti kepptu 5 lið, og varð
í. M. A. annað í röðinni. Er J^að mjög góð-
ur árangur. Á nýafstöðnu Akureyrarmóti
urðu þrjú lið jöfn í öðru sæti, og var í. M.
100 M U N I N N