Muninn - 01.05.1960, Síða 29
A. eitt þeirra. Þar sem flestir leikirnir voru
háðir rétt fyrir páska, gat skólinn ekki teflt
fram sínu sterkasta liði vegna fjarveru
manna í páskaleyfi.
SUND.
Sundmót M. A. fór fram laugardaginn
31. okt. í Sundlaug Akureyrar. Gefið var
leyfi úr tveim síðustu tímum, og fjöl-
menntu nemendur mjög til mótsins. Keppt
var í 7 greinum, og var keppnin bæði tví-
sýn og skemmtileg.
Verðlaunapeningar með MA-uglu voru
veittir fyrsta manni í hverri grein.
ÚRSLIT:
50 m. skriðsund karla (11 kepp.):
1—2. Óli Jóhannsson II ........ 30.8 sek.
1—2. Magnús Ólafsson V......... 30.8 sek.
3. Svanur Eiríksson III .... 32.0 sek.
50 m. bringusund karla (6 kepp.):
1. Valgarður Egilsson V ....... 36.2 sek.
2. Baldvin Bjarnason V ....... 36.6 sek.
3. Kristján Ólafsson III ..... 37.6 sek.
50 m. skriðsund kvenna (4 kepp.):
1. Valgerður Valgarðsdóttir Lpr. 40.5 sek.
2. Auður Friðgeirsdóttir II .... 40.7 sek.
3. Erla Möller I............... 42.8 sek.
50 m. baksund karla (2 kepp.):
1. Óli Jóhannsson II........... 40.5 sek.
2. Garðar Gíslason V........... 42.9 sek.
100 m. bringusund karla (5 kepp.):
1. Valgarður Egilsson V . . . . 1.20.0 mín.
2. Baldvin Bjarnason V .... 1.24.4 mín.
3. Kristján Ólafsson III .... 1.26.6 mín.
4x25 m. boðsund kvenna (3 sveitir):
1. Landsprófsdeild ......... 1.26.2 mín.
2. I bekkur................. 1.28.3 mín.
3. II bekkur ............... 1.28.5 mín.
10x50 m. boðsund karla (5 sveitir):
1. V bekkur .............. 5.50.2 mín.
2. III bekkur............. 5.59.8 mín.
3. VI bekkur ............. 6.07.7 mín.
4. IV bekkur ............. 6.08.6 mín.
5. Miðskóladeild ......... 6.30.8 mín.
Stig:
1. V bekkur .................. 30 stig
2- II bekkur ................. 15 stig
3. Landsprófsdeild .......... 13V2 stig
4. III bekkur................ ID/2 stig
5. I bekkur ................... 7 stig
6. -7. VI bekkur............... 3 stig
6.-7. IV bekkur ............... 3 stig
BÆN EYRBYGGJA
O, þú Summus Geómetricus!
Verndari hringa og horna, konungur boga og
bauga, hertogi snertla og sneiða, barón geisla og
geira, greifi hliða og hæða, stjómandi punkta og
prika, plúsa, mínusa og strika. Sendu vizku þína
eftir parallellum línum til oss allra, sem erum
smáir sem hinn geómetríski punktur, og varna
því, að vizka þín renni í hring í hugum vorum.
Styrk oss til að greiða úr þeirri geómetrísku
flækju, sem umlykur oss á þessari stærðfræð-
innar stundu. Ljúk upp augum vorum fyrir
leyndardómum hyrninga þinna, og gef oss kraft
til að sanna reglur þínar. Gef, að vér líkjumst
þér æ sem mest og lærisveinum þínum, Arki-
medesi og Pýþagórasi, Bi-ynjólfi og Sveini og ger
vizku vora kongrúent speki þeirra. Gef, að vér
minnumst hins gullvæga kvæðis: Þó að ég sé
allra verstur í algebru, þá er ég manna beztur í
geómetríu! Saumaðu fyrir vor geómetrísku göt
með þinni óendanlegu línu, svo að vísdómur
þinn megi geymast þar heill og óskertur til ei-
lífðar eins og kjöt í frystihúsi KEA.
Amen, punktur og strik.
Eyrbyggjar.
(Eyrbyggjar voru fimm strákar úr þriðja bekk, sem
bjuggu á Eyri veturinn 1942—43).
M u N 1 N N 101