Heimilisblaðið - 01.03.1958, Side 37
Hvernig þvoið þér ullórflíkur?
, ,s°rglegt er til þess að vita, hve margar ungar
SlBæður eyðileggja nýjar ullarflíkur í þvotti,
klaufaskapar eða fávizku.
Her eru góðar leiðbeiningar.
^ælið fyrst flíkina (axlabreidd, brjóstvídd,
^jaðmabreidd og ermalengd) og skrifið málið
2 aiður.
Utbúið volgt sápuvatn (umfram allt ekki heitt).
Óttizt þér, að flíkin láti lit, þá hellið 1 matskeið
3 &f ediki út í vatnið.
Hafið 2 skolvötn tilbúin, svo að þér getið sett
ffíkina beint út í, án þess að hún þurfi að liggja
°g bíða, en það getur orðið afdrifaríkt, ef um er
að ræða flik, sem lætur lit. Sé síðara skolvatnið
ekki tært eftir notkun, þýðir það það, að þér
4 turfið að skola flíkina enn í einu vatni.
Setjið undir öllum kringumstæðum edik í sið-
asta vatnið, jafnvel þótt þér hafið sett það í
g sápuvatnið.
yefjið flíkinni inn í handklæði og þrýstið vatn-
inu vel úr.
0. K
^egar að því búnu takið þér flíkina út úr hand-
áiasðinu og leggið hana á þurrt stykki og teygið
7 uana í sína upprunalegu lögun eftir málinu.
hátið hana liggja á þessu stykki, þangað til
nún er alveg þurr.
NB. Prjónaðar flíkur má
ekki þurrka á miðstöðvar-
SÚKKULAÐIMEDALÍUR
100 gr smjör
200 gr sykur
2 lítil egg
275 gr hveiti
V2 stöng vanilla
V2 dl romm
3 matsk. kókó.
Á plötuna: smjörlíki.
Á milli: smjörkrem úr 1 eggjarauðu, 100
gr smjörlíki, 50 gr. flórsykri og niður-
rifnum berki af 1 sítrónu.
Til skrauts: hjúpsúkkulaði, möndlur.
Hnoðið saman smjör, sykur og egg. Bætið út í
hveiti gegnum sigti og hnoðið þetta vel saman á
borðinu. Skafið innan úr hálfri vanillustöng og hnoð-
ið því saman við, ásamt romminu og kókóinu.
Fletjið deigið þunnt út og takið undan kringlóttu
takkamóti, bakið kökurnar við vægan hita. Leggið
þær saman kaldar tvær og tvær með smjörkremi
og smyrjið bræddu hjúpsúkkulaðinu alveg yfir. Setj-
ið lítinn topp af hökkuðum, ristum möndlum á
hverja köku.
HÚSRÁÐ —
★ Þér getið brýnt skæri með því að „klippa“
nokkrum sinnum með þeim um flöskuháls.
•jc Þér getið ákveðið, hvort egg er soðið, með því
að rúlla því eftir borði. Soðið egg rúllar létti-
lega, en ósoðið mun hægar.
óhrein spil má hreinsa með því að nudda þau
með klút, sem vættur hefur verið í mjólk, að
því búnu stráið þér barnapúðri á þau.
★ Vaxblettum má ná úr dúk með því að leggja
dúkinn milli tveggja arka af þerripappír og
strjúka með volgu straujárni yfir.
★ Tóbakslykt má fjarlægja úr herbergi með því
að láta fulla skál af vatni standa þar inni yfir
nóttina.
HEIMILISBLAÐIÐ — 81