Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Qupperneq 10

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Qupperneq 10
Nautgripaþjófarnir Strax eftir að lestin hafði stanzað við brautarpallinn í Antilope ávarpaði mig ung- ur kúreki, hávaxinn og holdskarpur, með grá kuldaleg augu og kinnar sem voru svo slétt- raltaðar að þær gljáðu. Hann tók hattinn of- an og hneigði sig. „Ungfrú Randall?“ spurði hann. „Peg- ursta kennslukona í heimi V ‘ „Oldungis rétt!“ svaraði ég á þann feimn- islega hátt sem er svo mikill þáttur geðþokka míns. „Porsjónin hefur veitt mér þetta útlit, að viðbættri auðmýkt hjartans, svo að ég stæri mig ekki af því. — En þér, herra minn? Ytra útlit yðar er svo glæsilegt, að það kem- ur mér á óvart, en annars finnst mér ég eitt- hvað kannast við andlitssvipinn.“ „Má vera,“ sagði hann, „þeim mun frem- ur sem ég hef tamið mér alúðlega fram- komu.“ Að svo mæltu lyfti hann mér í faðm sér og kyssti mig á þann hátt, að sérhver kvikmyndaklippari hefði gripið til skæranna •— og þetta gerði hann að viðstöddum stöðv- arstjóranum, tveim verzlunarferðamönnum og einum flækning! „Má ég spyrja,“ sagði hann þegar hann loksins sleppti mér, „hvort ungfrúin muni ekki eftir mér?“ „Jú,“ svaraði ég og greip andköf, reyndi að forða sjálfblekungnum mínum og setja hattinn á höfuðið. „Þetta minnir mig á það þegar ég var kysst seinast. Og nú man ég það : Þér eruð maðurinn sem ég á að giftast í næstu viku. Gaman, að ég skyldi hitta yð- ur hér.“ „Já, heimurinn er lítill,“ svaraði hann og brosti, og samt var eins og brosið væri ekki alveg ekta, og fingur hans kreistu handlegg- inn á mér líkt og hann væri óstyrlcur. „Anna, litla fallega stúlkan mín, Lilla Meyer, er liér með bílinn frá Churcchills-hjónunum og við sendum farangurinn þinn með lionum.111 „Sendum farangurinn minn?“ spurði ég. „Vegna hvers? Er þetta verðlaunagetraun eða hvað?“ „Þú og ég,“ svaraði hann, „við förum á hestbaki. Það er svo geysimargt sem ég þarf að tala um við þig.“ „Já, en göngufötin mín?“ sagði ég í mót- mælatón. „Þau eru splunltuný. -—- Þau myndu gersamlega eyðileggjast, ef ég ætti að sitja í þeim á hestbaki ...“ „Að sjálfsögðu hefurðu fataskipti," sagði liann. „Komdu með á krána, þú getur lagað þig til þar.“ Það reyndist dásamlegur reiðtúr heim á leið þennan fagra síðsumardag. Gullin gras- sléttan þandist í margar mílur til allra átta til fjallahringsins, rökkrið féll á eins og gagn- sætt teppi, og þegar við komumst að fjalls- rananum birtist á himinhvolfinu stór þoku- slunginn máni. Hestarnir voru teknir að lötra og Lewis rétti mér höndina. Samt sem áður var eitthvað raunalegt við þetta allt. „Anna,“ sagði Lewis, og röddin var þunglyndisleg. „Það ætti að skjóta mig fyrir að fá þig til að koma hingað út eftir og giftast mér. Ef það verður þá endirinn.“ „Jæja, svo þér finnst liugmyndin kannski ekki eins ágæt og áður?“ svaraði ég í nokk- uð yfirlætislegum tón. „Segðu ekki slíka vitleysu," hreytti hann út úr sér. „En þú ættir ekki að giftast mis- heppnuðum kúreka. I sannleika sagt, þá reyndi ég að skrifa þér hvað allt gengi illa. Þú veizt hvað allt horfir ömurlega sem stend- ur. En ég hefði svosem getað komizt af og yfirstigið erfiðleikana, ef nautgripaþjófarn- ir hefðu ekki komið í spilið.“ „Nautgripaþjófar ?“ spurði ég. „Eg hélt þeir væru komnir úr tízku eins og síðu pils- in og blygðunarsemin. Eru þeir virkilega til ennþá?“ „Já, hér úti er ýmislegt enn við lýði,“ sagði hann. „Gömul tízka varir við, — meira að segja blygðunin. Nautgripaþjófarnir hafa látið til sín taka — það eru aðeins aðferðir þeirra sem eru nýjar af nálinni. Þeir eru 98 HEIMILISBIiAÐIf

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.