Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Síða 14

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Síða 14
Sumarmálakveðja Ég var núna að ljúka við að binda síðustu árganga Ileimilisblaðsins 1965—67. Ég á þetta blað frá upphafi göngu þess. Það er allmikið og eigulegt safn, 16 bindi alls. Þar er að finna margvíslegt og laðandi lestrar- efni. Þótt mjög sé umbreytt viðhorf manna og mláefna frá því að Heimilisblaðið hóf sína för í ársbyrjun 1912 hefur það í öllum aðal- atriðum haldið þeirri stefnu sem í upphafi var mörkuð. En svo segir í 1. tölublaði 1. árg.: „. . . erindi þess, að verða hverju heimili til heilla ... með því að blaðið skemmti, gleðji, fræði, hvetji og aðvari með sögum, kvæðum og greiuum------löguðum til að hafa góð áhrif á lesendurna, einkum þá yngri“. Með þeim orðum og ásetningi lagði það af stað út iim bæi og byggðir landsins. Smátt var það vexti og áskriftarverðið var 75 aurar ár- gangurinn. Utgefandi og ritstjóri þessa litla mánaðar- rits, Jón prentari Helgason, var mér þá al- veg ókunnur, þó hann eftir einhverjum leið- um hafi fundið nafn mitt. En þar eð mér leizt vel á þetta 1. tbl. gerðist ég áskrifandi þess og féllst á að reyna að greiða ofurlítið götu þess. Bréf fóru að berast milli Jóns Iíelgasonar og mín og góð kynni hófust, sem svo urðu nánari við persónuleg samtöl og brátt varð hann einn minna beztu vina. Og litla blaðið hans stækkaði og breytti útliti. En efni þess alltaf í svipuðum dúr, í samræmi við stefn- una sem í upphafi var tekin. Utgefandinn, alltaf sami hógværi skapfestumaðurinn, hélt strikinu án þess að hvika, þótt öldur and- stæðra skoðana og brotsjóir breytinga risu allt um kring. Trúin á algóðan Guð var leið- arstjarnan, sem stýrði hug og hendi við val hans á efni blaðsins. Og synir Jóns, þeir prúðu góðu drengir, fóru snemma að veita aðstoð við útgáfuna og efnisöflun. Og trú- lega hefur stefnunni verið haldið síðan hans missti við. Það er sannarlegt ánægjuefni vin- um lians og unnendum. A Heimilisblaðsins fyrstu síðu fyrsta blaðs 1912 stendur, m. a.: Þú munt finna þrekið vaxa og þína sálarró á ný ef þú dag livern góðverk gjörir glaður Jesú nafni í.----- Þurfamann er þarfnast gjafa þú skalt eitthvað gleðja hann og hinn sjúka og liugarhrellda, hugga reyndu aumingjann. — — Til hins rœgða og syndaseka segðu eittlivert lilýlegt orð, bros þitt getur barnið huggað, er beizkum tárum vætir storð. Ef þú lieyrir iiallmælt öðrum hógvær taktu svari hans.------ Ég var að fletta blöðum þessum og grípa ofan í þau á ýmsum stöðum. í 1. blaði 1913 segir: Það (blaðið) mun halda sér frá þræt- um og- þrasi-------------það vill færa með sér kristilegan frið, kærleilta og gleði inn. á þau heimili, sem veita því viðtöku. A einum stað verða fyrir angum þessi stef: Hann kemur Guðs hinn kæri son, hann kemur, liuggun þín og von, ó, kom, með höndum tómum tveim að taka á móti gesti þeim. I 10. árgangi, ár 1921, er þetta: Ef sérðu bróðir, særðan mann, í svartnættinu reika, þá leiddu inn í ljós þitt liann og læknaðu sál hans veika. yfir axlir mínar. „Þú ert stórkostleg, Anna. Þú veizt ekki, hvað ég er þér þakklátur. Á þessu hérna græðum við fjögur þúsund doll- ara, og nú getum við gifzt. Hér verður ekki stolið nautgripum fyrst um sinn, það er ég viss um. Geturðu haft gætur á náungunum á meðan ég kyssi þig?“ En kossinn varð ósköp vandræðalegur. Tvær af skammbyssunum sem ég reið með hleyptu af sér, og einn af náungunum á und- an okkur rumdi við: „í guðanna bænum, getið þið ekki beðið með þetta kossaflens þangað til þið hafið komið byssunum á óhult- an stað ?“ Ég leit á Lewis og yppti öxlum. Yið því var ekkert að segja, þótt mannagreyin hefðu ekki mikinn sans fvrir rómantík eins og ástatt var fyrir þeim þessa stundina. 102 HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.