Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Síða 24

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Síða 24
Ilann brosti biturlega, og þrátt fyrir allan lieiðarleika í garð Susan hlaut Fran að við- urkenna, að það var mildð til í því sem hann sagði. Æ, hví hafði Susan ekki séð þetta sjálf? Hvers vegna hafði hún lialdið áfram eins og allt væri í bezta lagi, og ímyndað sér að ekki væri ástæða til að hafa neinar áhyggj- ur úr því að allt sýndist gott og fellt á ytra borðinu ? „Eg hefði kannski haldið áfram að lifa lífinu þannig,“ sagði John, „því að þrátt fyrir allt hef ég alltaf dálæti á Susan — en svo kynntist ég Pixy. Ef ég hefði ekki kynnzt henni —“ „Heldurðu að hún geti gefið þér allt sem Susan hefur ekld veitt þér?“ spurði Fran. Jolin hugleiddi spurninguna lítið eitt. „Ekki veit ég það,“ sagði hann, „en ég ætla að reyna. Óneitanlega eldist ég, Fran, og ég lief ekkert á móti því að vita hvernig það er að eiga raunverulegt heimili og góða eig- inkonu, sem ekki hefur áhuga á öðru en mér. Og Pixy elskar mig.“ „En hún er varla annað en stórt barn,“ sagði Fran. „Finnst þér þú geta varið það að hlaupast brott með henni á þennan hátt V ‘ John brosti aftur dauft, hálf afundinn. ,„Eg efast ekki um, að annað fólk mun álíta mig argasta þorpara, sem liafi afvegaleitt saklaust barn að heiman frá sér. En reyndar er það Pixy sjálf, sem hefur beðið mig um að gera það, og hún veit hvað hún vill. — Við munum dveljast erlendis þangað til skiln- aðurinn er um garð genginn.“ Fran studdist við arinhilluna. „Skilnaður- inn er um garð genginn.“ Fran studdist við arinhilluna. Skilnaður- inn! Aftur stakk þetta skrímsli fram hausn- um. Hvers vegna þurfti allt að vera svona viðbjóðslegt? Iívers vegna gat fólk ekki elsk- að hvað annað allt sitt líf? IJún gerði nú síðustu örvæntingarfullu til- raunina til að tala um fyrir honum: „En ég veit það, John, að Susan elskar þig innst inni. Ur því þér gremst það svona, að hún skuli eyða öllum tíma sínum í leikhúsið, hvers vegna biðurðu hana þá ekki um að hætta því? Þið gætuð ferðazt eitthvað burt héðan — bara eitthvað burt.“ „Slíkt myndi hún aldrei gera,“ sagði hann. „Auk þess er það orðið of seint núna.“ Hann snöggþagnaði og hlustaði. Utan frá götunni barst hávaði frá bílflautu. „Það er Pixy,“ sagði hann stuttlega. „Hún er komin til að sækja mig. Við ökum til Dover í kvöld.“ XXIV. OF SEINT —! Það varð þögn í heila, langa mínútu, þeg- ar bílflautið hætti. „Eg verð að fara,“ tautaði John. „Eg get ekki látið Pixy bíða svona.“ En núna, þegar liin stóra stund var runn- in upp, hafði Fran það á tilfinningunni, að hann ætti bágt með að fara. Hann svipaðist um í stofunni, og það var þjáning í andlits- dráttunum. „Hér vorum við vön að sitja fyrst, þegar Susan var komin heim úr leik- húsinu á kvöldin,“ sagði hann lágt. „Undar- legt hvað maður man það glögglega núna, þegar það er liðið fyrir fullt og allt. En hvaða máli skiptir það,“ sagði hann svo snöggt. „Þetta er enginn tími til upprifjana. Við verðum að komast til Dover áður en ferjan fer.“ Hann gekk í átt til dyranna, en nam staðar og sagði: „Reyndu að gera Susan þetta eins bærilegt og þú getur, Fran. En hvað svo sem þú ger- ir, þá segðu henni ekki neitt fyrr en hún er komin heim úr leikhúsinu í kvöld.’“ Síð- an gekk hann rakleitt að Fran og lagði hend- urnar á axlir henni. „Hvað heldurðu um mig, Fran? Að ég sé -—■ þorpari?“ „Hvernig ætti ég að geta lialdið það?“ sagði hún undrandi. „Þú sem hefur verið mér svo góður allt frá því ég kom hingað fyrst. Eg vildi að ég gæti hugsað eins og þú lieldur — Susan vegna. Eg held mér myndi líða betur. En ég er farin að lialda, að ein- mitt þær manneskjur sem maður hefur mest- ar mætur á í lífinu, þær valdi manni sár- ustu vonbrigðunum.“ John brosti biturlega. „Þú ert dálítill heim- spekingur, Fran,“ sagði hann. „Mér þykir næstum því eins mikið fyrir því að fara frá þér eins og frá Susan. Mér var farið að þykja vænt um litlu stjúpdóttur mína. — Einhvern tíma síðar, þegar þú liefur jafnað þig eftir allt þetta, þá leyfirðu mér kannski að hitta þig aftur.“ Svo var hann horfinn út úr stofunni, það skyndilega að Fran gafst ekki tækifæri til að J 112 HEIMILISBLAÐIP

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.