Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 35

Heimilisblaðið - 01.05.1968, Blaðsíða 35
að inn af því að það er nákvæmlega sama íjölskyldunafnið, en nú skal ég fara með þetta burt.“ Forvitnin fékk Fran til að líta á eina tösk- una og gá hvað stæði á nafnspjaldinu. Ifún stóð kyrr og gapti. Þetta gat ekki verið rétt. Það var öldungis með ólíkindum. Á nafn- sPjaldinu stóð, skýrum stöfum: Peter Kel- way. Fyrst í stað hafði þetta þau áhrif á Fran, að hún botnaði ekki í því hvað orðin raun- verulega þýddu. Hún leit aftur á spjaldið, og henni var ekki ljóst, hvort hún var að missa vitglóruna. Hvað áttu ferðatöskurnar hans Peters að gera hingað inn í káetuna hennar ? Peter var þó heima í Gloucestershire ásamt Horothy Ashworth. Það gátu auðvitað verið margir menn í veröldinn sem báru nafnið Feter Kelway, en það var þó undarlegt, að maður með einmitt slíku nafni skyldi ferðast á sama skipi og liún. Það var ólíklegt. Og nú, þegar hún gaumgæfði farangurinn betur, fannst henni líka hún þekkja töskurnar. Þjónninn var þegar búinn að axla tvær þeirra °8 baðst öðru sinni afsökunar. Fran svaraði engu. Hún var algjörlega mállaus. Þjónninn var kominn fram fyrir dyrnar, ^egar hún heyrði mannsrödd á ganginum, Sem sagði: „Þetta er fyrirtak, þjónn. Ég sé, að þér eruð með farangurinn minn. Káetan m>n er hérna rétt handan við hornið.“ uHvað .. . Var einhver að kalla á mig? Fiidd Peters var óvenju hvöss. — Hann mjak- aði sér framhjá þjóninum, og í heila mínútu stóð hann kyrr og starði undrandi og orðlaus á veruna í brúnu ferðafötunum og með ljós- tauða hálsklútinn. Bláu augum hans voru stór af undrun, rétt eins og liann gæti ekki sldlið það, að það var Fran sem stóð þarna ^ r'r framan hann. Þjónninn kom inn, til þess að sækja af- úauginn af farangrinum, en Peter hnykkti til ofði, til merkis um að hann færi. -Þetta má bíða, þjónn,“ sagði hann. „Ég fekki þessa stúlku.“ Og kaldhæðinn glampi raUzt fram í augu hans. -. •’ðnninn leit á þau til skiptis og dró sig é]1 e'.ffann hafð á tilfinningunni, að eitthvað Uegilegt væri í uppsiglingu. eter spurði hásróma: „Hvað ert þú að gera. kér, Fran?“ er á leið til Kanada. Heim í fjöllin mín. En þú — hvers vegna ert þú hér ?“ Hún reyndi að spyrja kæruleysislega, þótt hún ætti bágt með það. „Ég er að reyna að stinga af frá öllum grandvarleikanum og siðavendninni heima í Englandi,“ svaraði hann. Brún augu Fran komu upp um undrun hennar. „Skrítið. Ég er einmitt að því sama. Ég er orðin dauðleið á öllu hér.“ Peter hugleiddi þessi orð hennar andartak. Svo hallaði hann sér að dyrakarminum. „Hvar er — Jim?“ spurði hann. Fran brosti dauft. En í stað þess að svara spurði hún hann svipaðrar spurningar: „Hvar er Dorothy?11 Peter hrukkaði ennið gremjulega. „Eg get skollann í Dorothy! Ég hef ekki hugmynd um hvar hún er niðurkomin, og mér stendur al- veg á sama.“ Fran studdist við rúmgaflinn. Henm var ekki ljóst á þessari stundu hvort hana var að dreyma, eða hvort hún var búin að missa vitið. Hafði hún heyrt rétt? Nú, en ... ég hélt þú ætlaðir að giftast he’’ni L síðar ?“ hálfhrópapði hún. „Ég hélt það væri þess vegna sem við skildum.“ „Svo var líka að heyra sem hún heldi það, svaraði Peter hranalega. „Ég veit ekki hvern- [ty hún hefur fengið þá hugmynd. En alla- vega vakti ég athygli hennar á þeirn vit- leysu hjá henni í gærkvöldi. Eg let hana vita að ég kærði mig ekki hætishót um hana.“ „Gerðirðu það? Sagðirðu það við hana? 0<r allt í einu áttaði Fran sig á því, að hún víu- farin að skellihlæja, næstum sefasjúkum hlátri Ó, Peter, hún hefur áreiðanlega orð- ið æfareið, var það ekki! Ég hefði viljað gefa mikið fyrir að sjá framan í hana um leið og þú sagðir þetta við hana. Fmnst þer ég vera andstyggileg ...?“ _ Og Fran hélt áfram að hlæja, þangað til Peter gekk að henni og greip í öxl hennar, því hann skildi ekki, hvers vegna hun hlo Hvað á þetta að þýða, Fran? Þu heldur þó” ekki að það hafi verið ætlun mín að ganga að eiga Dorothy? Hélztu það?“ Hann gleymdi á þessari stundu, að hann hafði þo haldið það sjálfur um tíma. Hélt ég það ? Hvað annað heldurðu að é<r”hafi haldið undanfarna mánuði? Iívers Framh. á bls. 130. Hisblaðið 123

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.