Heimilisblaðið - 01.05.1968, Síða 36
Við. sem vinnum eldhússtörjin
Nú fer sumarið í liönd og við sem vinmim
eldliússtörfin verðum kennski svolítið latar
í eldhúsinu. En þegar sólin skín inn um
gluggana okkar inn í herbergin og stofurn-
ar, þá komum við ef til vill auga á það, sem
við höfum ekki séð í skammdeginu, að ým-
issa breytinga eða lagfæringa er þörf.
Yið byrjum þá á gluggunum. Ef útsýnið
úr glauggunum er mikið og fallegt, þá er auð-
vitað ekkert vit að byrja þá með mörgum
lögum af gardínum. Setjið þá upp sem ein-
faldastar hliðargardínur, sem lítið fer fyrir
á daginn, en sem auðvelt er að draga fyrir
á kvöldin.
Ef glugginn er ekki stór, og ekki hætt við
að mikið sjáist inn um hann þá má nota
klifurplöntu í staðinn gardínur, t. d. vínvið.
Ef útsýnið er leiðinlegt, t .d. grár húsveggur,
eru ágætar þunnar gardínur (storisar) fyrir
gluggana og þykkri hliðargardínur. En ef
glugginn er ekki mjög stór má fela leiðinlegt
útsýni með því að hengja blóm upp á mis-
munandi hátt, eins og sýnt er á einni með-
fylgjandi myndinni.
Svo eru það herbergin sjálf. E. t. v. þarfn-
ast þau bara nýrrar málningar, eða til til-
breytingar gæti verið gaman að reyna nýju
veggfóðrin. Þau eru mörg mjög falleg og
mörg þeirra má þvo.
En það er fleira en málning og veggfóður,
sem má setja á veggina. Hér fylgja myndir
af nokkrum tegundum af bast- eða bambus-
vefjum, sem eru sérstaklega fallegir, en það
er dálítill vandi að setja þá upp, er oft viss-
ara að fá fagmann sér til aðstoðar.
Svo síðast en ekki sízt eru það tréveggirnir,
sem hafa verið mikið í tízku hér undanfarið.
Þeir eru yfirleitt ákaflega fallegir og setja
hlýlegan svip á herbergið. Ef við erum með
vegg í stofu eða jafnvel forstofu, sem okkur
finnst vera kaldur og leiðinlegur þá er hægt
að fá tilbúnar plötur til að setja upp.
Blússur.
Þegar íbúðin er komin í sumarfötin væri
ekki úr vegi að líta í fataskápinn sinn, og
þó að pyngjan sé kannski í léttara lagi þá
er ótrúlegt að ekki sé hægt að fá sér eina
eða tvær blússur og hér eru myndir af nokkr-
um, sem hæfa íslenzku loftslagi.
Til að svíkja ekki eldhúsið alveg, þá eru
hér nokkrar uppskriftir af skemmtilegum síld-
arréttum:
Tómatsíld:
1 dós af beinlausri sild
1 finsaxaSur laukur
1 tsk sykur
1 msk steinseja (persille) - É
2 liarðsoöin egg.
Raðið síldinni á disk. Hrærið lauk, tómat-
sósu, sykur og steinselju saman og bætið leg-
inum af síldinni út í. Hellið þessu yfir síld-
ina og látið standa í 5—6 klst. Skreytið með
harðsoðnum eggjum. Framreitt með rúg-
brauðssnittum og smjöri.
Síldarsalat:
1 dós beinlaus síld
3 soðnar kartöflur
2 msk fínt saxaðar asíur
1 msk edik
1 tsk sykur
]/2 tsk krry.
Blandið saman síld, kartöfluteningum og
asíum. Hrærið eða hristið saman edik, olín,
sykur og karry og hellið yfir salatið. Látið
það standa í nokkra klst. Framreitt með rúg"
brauðssnittum og salatblöðum.
Síklarkokkteill a la russe:
1 dós gaffaíbitar
1 fíntsaxaður laukur
1 fíntsaxað epli
1 msk fínmöluð asía
100 gr. mayonnaise
1 lítið glas danskur kavíar
steinselja.
Blandið gaffalbitum, lauk, epli og asín
saman og skiptið því í 4 ábætisglös. Hrærið
mayonaise saman við kavíarinn og hellið yfY
og látið á kaldan stað. Skreytið með steim
selju. Framreitt með rúgbrauðssnittum
smjöri.
124
H E IM IL I S B L A Ð X P