Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Page 44
238
Haust.
iðunn
að svo miiklu færri séum og smærri. Og |>að ætti að
vera eitt af hinum miklu áhugamálum íslendinga, að
þeirri hjálp yrði komið fram. Væri í því efni sérstak-
lega mikilsvarðandi, að i öllum norskum barnaskólum
væri kent að skilja íslenzku. En ef það tækist að vekja
skilning og áhuga á þýðingu þessa atriðis, þá mundi
varla verða torvelt að fá því framgengt. Og svo virtist
mér, sem óhætt mundi að fullyrða, að norskum börnum
mundi ekki verða það erfitt, að læra að skilja og
tala íslenzku. (Sbr. gnein mína, þar seim á þetta er
vikið, í alþingishátíðarblaði „Lögréttu".)
5. sept.
Helgi Pjeturss.
Haust.
Stend ég nieðal grónna grafa,
— grafa æskuvina minna.
Einn og einn þeir hniigu, hurfu,
hurfu undir jarðarsvörðinn.
Hægt og rótt á hausti mildu
hnígur regn úr dökkum skýjum.
Einn ég stend hjá grónum gröfum,
gröfum æskuvina minna.
Hægt og rótt á hausti mildu
hnígur regn úr djúpum skýjum.
Dimma tekur, dökkna tekur
djúpið geims og jarðarhringur.