Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Qupperneq 78
272
Gef oss Barrabas lausan.
iðunns
í fangelsi í 14 ár. Landstjórinn er framvegis ófús á aö
náða. Hann hlýtur að hafa góðar og gildar ástæður tiL
þess — og býsna gild rök til að fara dult með þær.
X.
Ég hefi nú getið tveggja þorpara, sem óátalið hafa
mátt fremja eins mörg morð og þá lysti. Ég hefi nefnt
önnur tvö dæmi, þar sem saklausíum mönnum hefir
verið refsað með lífláti eða æfidöngu fangelsi. Og í
báðum daamum er það sýnt, að hinir dæmdu eru full-
trúar hinniar róttæku verklýðshreyfingar.
Vafalaust verð ég sakaður um, að þetta sé of veikur
grundvöllur til þess að byggja á kenningu. Þetta verður
talinn skortur á „hlutleysi“. Daglega séu hundruð
þorpara dæmd, og hér sé að eins getið um tvö dæmi
þess, að þeir sleppi við refsingu.
Hér til er því að gegna, að í mínum augum er það
ekkert kraftaverk, að afbrotamaður sé dæmdur. En
þegar heilar hersveitiir glæpamanna leika lausum hala,
svo að á vissum stöðum mynda þeir hið sterkasta
félagsafl, eins og t. d. í Chicago, þá er það atriði,
sem vert er að athuga.
Og þegar ég nefni að eins tvö dæmi skýlausra dóms-
morða, þá er svo sem ekki eins og jnó sé að heiilsa,
að þau séu nein undantekning. Öðru nær.
Ef ég ætti að fara í gegn um þau ókjör pólitískra
dómsmorða, sem átt hafa sér stað á síðustu 10—15
árum, þá er ég hræddur um, að mér færi að dveljast.
Enn þá munum við Zacoo-Vanzetti-málin og Gastoníu-
málin. — Alt af sömu endurtekningarnar: Keypt vitni,
leigðir kviðdómendur, dómari, sem er mútáð, og sak-
lausir menn dæmdir.
Kunnur amerískur blaðamaður, Oswald Garrison