Iðunn : nýr flokkur - 01.09.1931, Blaðsíða 112
306
Sefjanir.
iðunnj
deyja í april. Svo einkennilega vildi til, að hún varð alveg
lystarlaus fyrsta apríl. Fáum dðgum síðar lagðist hún aftur
í rúmið, og lézt rétt fyrir mánaðarlokin. — Ég hefi heyrt
islenzkt dæmi, sem gæti mint á þetta. —
Tolstoi hélt pví fram hin síðari æfiár sín, að talan 7
væri sér óheillavænleg. 7. nóv. 1905 ritar hann niður' hjá.
sér ýmsar hugleiðingar um dauðann. 7. nóv. 1910 dó hann,
eftir nokkurra daga legu, enda þótt ástand hans „hafði ekki.
virzt alvariegt".
Vér höfum nú rætt um sefjanir, aðallega þó þær, sem.
ósjálfráðar mega kallast; en þannig má nefna þær vegna
þess, að við framkvæmum þær ekki vitandi vits, heldur
koma þær oss að óvörum og oss óafvitandi. Vér getuni
orðið þeirra varir eftir á. Qetum þá orðið varir saman-
hangandi atvikakeðju. En til þess þarf þó nokkuð nákvæmt
minni og vist lágmark sálfræðilegrar þekkingar.
Eftir þeim athugunum að dæma og þeirri þekkingu, sem
ég hefi aflað mér á þessum hlutum, hefi ég ástæðu til að
ætla, að allir menn verði að meira eða minna leyti fyrir
einhverjum ósjálfráðum sefjunum. En þekking manna á
þeirn efnum og athugunargáfa þeirra er ekki það mikil, að
þeir verði þeirra varir.
Ósjálfráðar sefjanir eru þá einn liðurinn í sálarlífi allra
manna, líka þeirra, sem eru andlega heilbrigðir (normal).
Enda má sjá það af dæmum þeim, er ég tilfæri hér að
framan, eftir prófessor Baudouin og dr. E. P. Levy, að þeir
telja sér enga skömm að því að vera undirorpnir slíkum
áhrifum.
Athugunin á ósjálfráðum sefjunum er enn á byrjunarstigi,
enda eru ýmsir erfiðleikar á því að fást við slíkar athug-
anir (eins og leiðir af því, sem áður er sagt). Það er því
margt, sem frekari reynsla, frekari þekking væri nauðsyn-
leg á. Nýjar og fleiri athuganir þarf til að staðfesta og gefa
fullnaðarskýringu á ýmsu því, sem hér hefir verið drepið á.
En nú þegar hefir þó á unnist allmikil þekking á þessum
sviðum, og má búast við því, að í framtíðinni fáist full-
komin þekking á þessum hluta sálarlífsins.
Arrii Ólafsson.