Kirkjuritið - 01.01.1935, Side 26
14
Fæddur til þess að fækka tárunum. KirkjuritiS.
undir leiðsögn Guðs til þess, að endurreisnin komi
skjótt, endurfæðing sannrar trúar. Og af slíkri vakningu
á að leiða ný skipun á félagsmálunum. Nú þegar er
unt að eygja nýju kirkjuna rísa, nýju fjölskylduna, nýju
menninguna, nýju skiftinguna á jarðargæðunum
ávöxt andans“.
Ásmundur Guðmundsson.
Fæddur til þess að fækka tárunum.
í ávarpi til gagnfræðinga 1934 komst Sigurður Guð-
mundsson skólameistari á Akureyri meðal aiinars svo
að orði: „Vér fáum eigi efast um raunveruleik manu-
legrar þjáningar og mannlegra sára. Þjáningin vofir
sem voða-gammur yfir öllu lífi, og þessvegna fáum vér
eigi forðast liana né flúið. Það er einnig víst, að vér
þráum allir linun á þjáning vorri, í liverju gervi sem
hún mæðir oss. Vér þráum allir raunabót og sárabót.
Af þessari miklu staðreynd, óvefengjanlegri sem dauð-
inn, virðist mér leiða eitt boðorð, sem eigi verður rengt
né efað, að ldýða ber. Séra Matthías kom eilt sinn, í
viðræðu við ungan skólapilt, að likindum á sama reki
og' þið, einfaldlega og eftirminnilega, orðum að þessu
mikla lífsboði. Sveinninn sýndi honum kvæði eftir sig.
Skáldið lét lítið yfir Ijóðunum. I stað þess bað hann
piltinn að vanda vel alt, sem liann setti saman, og vanda
líf sitt. Og hann bætti við: „Því að ])ú ert fæddur til
þess að fækka tárunum í veröldinni