Kirkjuritið - 01.01.1935, Blaðsíða 76
64
Erlendar fréttir.
KirkjuritiS.
Mussoltni hefir boðið öllum skólastjórum á Ítalíu að leggja
mikla áherzlu á, að nemendur kynnist Nýja-testamentinu sem
bezt.
Samkvæmt erfðaskrá Sadhu Sundar Singh’s hefir húsi hans
verið breytt í klaustur, og dvelja þar nú fjórir „Sadhuar", sem
hafa sér til framfærslu tilskilda upphæð, ánafnaða af Sundar
Singh.
Síðustu orð Hindenburgs við Múller ríkisbiskup voru þessi:
„Sjáið þér um, að Kristur sé prédikaður alstaðar í ríkinu“.
Siðastliðið ár hefir meðlimum kirkjunnar fjölgað mikið í
Austurríki. í Vínarborg hafa 20000 horfið til kaþólsku kirkj-
unnar, 3000 til hinnar gamalkaþólsku og rúm 9000 til evangelsku
kirkjunnar. Al' hinum síðasttöldu voru flestir jafnaðarmenn.
Hið sama á sér stað um alt ríkið.
Árlega er lialdin bókasýning á Spáni, og þótti hin síðasta tak-
ast einkar vel. Sérstaka athygli vakli sýning Brezka Biblíufé-
lagsins.
Það sýndi bækur sínar í 40 sölum undir laufkrónum við
einhverja fegurstu skemtigötu höfuðborgarinnar. Var þar altaf
j)röng mikil dagana 10, sem sýningin stóð. Seldust þá alls
1382 Biblíur, 1054 testamenti og 32272 guðspjöll eða önnur rit
Biblíunnar. Alls 34708 bindi. Var sú sala enn meiri en noklc-
urir höfðu áður gjört sér vonir um.
3 •<=>*<=> ♦<==>♦<=> +<=>4C= C
Bókaverðlaun,
15 til 47 króna virði, til þeirra, er
útvega kaupendur að ,Kirkjuritinu‘.
Þeir sem útvega 5 kaupendur, fá 5 árganga af „Presta-
félagsritinu“, eftir vali bókavarðar Prestafélagsins; þeir
sem útvega 10 kaupendur, fá 3.—16. árg. af sama riti; en
þeir, sem 15 kaupendur útvega, fá auk þess 1. árg. ritsins,
meðan upplagið endist. Útsölumenn vitji verðlaunanna
hjá bókaverði félagsins, séra Helga Hjálmarssyni, Hring-
braut 144, sími 4776, Reykjavík, en standi honum fyrst
skil á áskriftargjaldi kaupendanna, að frádregnum 20% í
sölulaun. — Verðlaun þessi ná ekki til skyldurita presla.