Kirkjuritið - 01.12.1938, Síða 6

Kirkjuritið - 01.12.1938, Síða 6
376 Haraldur Níelsson: Nóv,-—Des. má líta á það frá sjónarmiði hirðanna í liaganum, sem verða fyrir undursamlegum atburði. Sú hliðin er líka aðlaðándi í augum margra, ekki sízt nú á dögum. Ef sál- arrannsóknafélagið enska væri sett lil að atliuga guð- spjallið, mundi það atliuga það frá þeirri hlið. Það má líta á guðspjallið frá enn hærri hlið: Frá sjónarmiði hinna himnesku hersveita, sem birtust liér á jörð, til þess að syngja lofsöngva og láta oss renna grun i, livern þátt liinn æðri lieimur tekur i lífi jarðneskra manna og hve þeir, sem þangað eru komnir, gleðjasl vfir ráðstöf- unum Guðs mannkvninu til handa. Sú hliðin, sem að þeim heimi snýr, er vissulega dásamlegust. En það er að minsta kosli ein hlið enn ótalin, eitt sjónarmið eftir, sem líka má verða oss athugunarefni. Sú liliðin gleymist helzt, en hún er áreiðanlega þess verð, að líka sé á liana litið. Ég á við jjetta, hvernig móttök- urnar voru af hendi Betleliemhúa — yfirleitt af hendi mannanna, er hið undursamlega barn kom i heiminn. Þeirri hliðinni er komið fvrir í þessum setningum um móður liaus: „Qglagði hann í jötu, af því að það var eigi rúm fyrir þau í gistihúsinu“. Þegar vér vorum hörn og guðspjallið var nýtt fyrir oss, tókum vér mikið eftir þessu. Þá þektum vér ekki lífið; samt fanst oss það undarlegar viðtökur, að þess- um himinsenda gesti skyldi ekki vera séð fyrir neinu hetra eu jötu í peningsliúsi. En því undursamlegra varð harnið í augum vorum; og hjarta vort fann til með sveininum, sem varð að fæðasl i slíkri fálækt. Það var stundum sem barnshugurinn hæfist á flug og langaði til að hjálpa. Þegar vér horfum lil l)aka og hugsum um, livað Krist- ur liefir verið heiminum, livílika hlessuu hann liefir flutt þjóðum og einstaklingum i allar þessar aldir, sem liðnar eru frá fæðingu hans, hvað hann er mörgum af oss enn i dag, þá getum vér ekki varist þessari hugsun: Var það ekki undarlegt, að liann skyldi fæðast í slíkri

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.