Kirkjuritið - 01.12.1938, Qupperneq 10
380
Ilaraldur Níelsson:
Nóv.—Des.
í sannleika, meðan liann dvaldist hér á jörð, var ekkert
rúm fyrir hann.
Sumir lærðu mennirnir liafa efað það á seinni árum,
að þessi frásaga Lúkasar um fæðingu lians geti verið
rétt. Þeir vilja lialda því fram, að liann muni hafa verið
fæddur í Nazaret. Upp úr slíkum tilgátum er nú ekki
mikið leggjandi. En hvað sem um það er, þá er víst, að
sannari lýsing á viðlökunum, sem hann fékk, hefir aldrei
verið færð í letur. Andlega lalað var þetta sannmæli:
Ekki einu sinni í gistihúsúm mannanna var rúm fyrir
liann.
Já, en nú er þetta alt breytt, muntu segja. Nú er hvar-
vetna rúm fyrir hann meðal kristinna þjóða. Þar hefir
hann verið tignaður og tilheðinn öldum saman. Nú hýð-
ur heimurinn honum það, sem er betra en pláss i gisti-
húsi.
Vér liöfum reist honum aragrúa af musterum, sem
með höndum eru gerð. Öll Guðshús kristinna manna eru
fyrst og fremst helguð honum sem hinum mikla og eina
meðalgangara. Allar kirkjur eru gistihús, þar sem lion-
um er boðin dvöl. Takmarkalausu fé befir verið til ]iess-
ara gistihúsa varið. Allar listir hafa lagt saman i að gera
þau mörg sem skrautlegust. Engin sú prýði, sem mann-
vitið liefir getað up])hugsað, hefir þar verið látin ónotuð.
Jafnvel gluggarúðurnar hafa verið gerðar svo, að þær
settu sérstakan undrahlæ á hvern geisla dagsljóssins,
sem inn í Guðsliúsið féll. Qg mannsálin hefir lirópað:
„Hér er liús fyrir þig, Jesús frá Nazaret, þú konungur
dýrðarinnar! Hér er heimili, sem vér liöfum þér reisa
látið!“ En fáisl mannsálin lil að hlusta, þá fær hún þetla
forna svar á móti: „Hvar er hvíldarstaður minn? seg-
ir drottinn.“ „Ég' bý á háum og helgum stað, en einnig
hjá þeim, sem hafa sundurkraminn og auðmjúkan
anda.“ Drottinn dýrðarinnar vill enn heiðasl gistingar
í hinu hlýja gistihúsi sálarinnar, en vér bjóðum honuin
jötu, hlaðna úr steinum.