Kirkjuritið - 01.12.1938, Side 14

Kirkjuritið - 01.12.1938, Side 14
Haraldur Níelsson: Nóv.—Dcs. 384 Ef þú gerir það, þá máttu eiga það víst, að þín bíður margháttuð liarátta; því slöðuglega rekur þú þig á þetta, að það er ekki rúui fyrir liann í gistihúsinu. Þú verður að herða þig gegn liverskonar óvild; þú mátt ekki láta það skelfa þig, þó að aðrir sýni þér kulda eða fyrirlitn- ing; þú mátt ekki Iáta útásetningar annara og aðfinsl- ur særa þig. Og þú verður að eiga mikið af kærleika, von og trú. Það reynir áreiðanlega á þetta alt. Án öfl- ugrar trúar á sigur liins sanna og rétta, fær enginn kom- ist gegnum dimmustu élin, sem á honum skella á þeirri leið. En því heitar sem þú elskar sannleik og réttlæti, því vonhelri verður þú um sigurinn, og þú efar aldrei, að hann vinnist að lokum. Allir þeir, sem trúa því að enn í dag fæðist við og við stórfeld sannindi inn i þennan heim, og að svo kunni að vera að einn slíkur sannleikur sé nú nýlega fæddur í þessari veröld og enn mikillega hjálparþurfi, skulu læra þolinmæði og hiðlund af því að hugsa um jötuna í Betlehem. Og samt verður oss að spvrja með undrun: „Hví geta að minsta kosti kristnir menn ekkert lært af þessari átakanlegu úthýsingarsögu, sem jólaguðspjallið liefir ávalt verið að lýsa fyrir þeim öld eftir öld“. Hví láta þeir aldrei meðferðina á Ivristi sér að kenningu verða? Hví gerasl menn ekki varkárir í kristn- inni, er fregnir ganga af því, að stórfeldur sannleikur sé fundinn. Hví æða sumir fram í blindni og ofsa? Það sýn- jsl svo augljóst, að kristilegt getur það naumast verið. Kristilegra væri að bíða og láta alt hlutlausl að minsta kosti, eða öllu heldur hitt: Reyna eftir föngum að kynna sér sem bezl málavöxtu. Er það ekki raunalegt til þess að luigsa, að þeir, sem kenna sig við Krist, skuli síðar verða að standa með blygðun og segja: „Ég vissi ekki, bvað ég gerði. Mér datt ekki í bug, að neitt svo störfelt væri að fæðast.“ Undarlegir eru vegir forsjónarinnar, að hver nýr sann- leikur skuli fæðast í jötu. Það er eingöngu hans eigið verðmæti, sem ó að vinna honum sigur og afla hoiium

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.