Kirkjuritið - 01.12.1938, Qupperneq 19
Kirkjuritið.
MINNING,
HARALDS prófessors NÍELSSONAR.
Öll íslenzka þjóðin minnist Haralds prófessors Níelsson-
ar 30. nóv., er sjötíu ár eru liðin frá fæðingu lians. Fer það
að vonum, þvi að hann var afreksmaður og höfðingi i
andans ríki. Gainla testamentis þýðing hans var vísinda-
legt þrekvirki, vönduð og nákvæm og á svipmiklu og
fögru máli, dýrgripur fenginn i liendur oss og hörnum
vorum og þeirra niðjum til verndar því, sem vér eigum
hezt í eigu vorri, trúnni og tungunni. Háskólanum var
það hæði sæmd og gifta, að eiga hann að starfsmanni nær
17 ára skeið, því að hann var frábærlega góður kennari,
og eru áhrifin af kenslu lians rist í hjörtu nemenda hans
og lialda áfram að nerna land hjá nýrri kynslóð. Þeim,
sem unna sálrænum vísindum, var hann ástsæll leið'togi
og fræðari á því sviði, auðugur að þekkingu og vegsögu-
þori. Og prédikari var hann svo tilkomumikill og glæsi-
legur, að honum er jafnað við Jón biskup Vídalín, og mun
hans á ókomnum tímum verða getið í kristnisögu þjóðar-
innar sem eins af mestu kennimönnunum, er lum hefir
eignast. Af eldmóði hans og trúarsannfæringu leggur enn
á oss skæran bjarma og sterkan yl.
Háskólinn minnist hans með samkomu og gefur út um
hann dálítinn hækling. Skipulagsskrá fyrir minningar-
sjóð lians hefir einnig verið samin og staðfest af konungi.
Kr hún á þessa leið:
l. gr.
Sjóðurinn heitir Minningarsjóður Haralds prófessors Níelsson-
ar, og er hann stofnaður til minningar um Harald prófessor Níels-